Frjáls verslun - 01.03.1979, Page 59
Belgíu, en Sharp í V-Þýskalandi,
og starfa hjá fyrirtækinu um 200
manns við dreifingu. Höfuðstöðv-
ar Pioneer eru í Tokyo. Sagði
Bjarni, að Pioneer fyrirtækið væri
stærsti framleiðandi í heimi á sviði
hljómflutningstækja. Fyrirtækiö er
einnig mjög framarlega í fram-
leiðslu HIFI stereo bílaútvarpa.
Sharp risafyrirtækið framleiðir
ekki eingöngu hljómflutningstæki
og sjónvörp, að sögn Bjarna held-
ur einnig vasareiknivélar, reikni-
vélar, heimilistæki s.s. ísskápa,
eldavélar og fleira. Sharp er fyrsta
fyrirtækið sem framleiðir sólarraf-
hlöður, og hefur Karnabær selt
vasareiknivélar með sólarrafhlöð-
um. Mesta áherslan hefur verið
lögð á sjónvarpstækin frá Sharp,
og sagði Bjarni að sala þeirra hefði
gengið mjög vel. Einnig var Sharp
fyrirtækið fyrst með framleiðslu
vasareiknivéla, sem slökkva á sér
sjálfar eftir þrjár mín. eftir að notk-
un lýkur, gleymi notandinn sjálfur
að slökkva á henni.
TTK fyrirtækið er stærsti fram-
leiðandi segulbandsspóla í Japan,
að sögn Bjarna, og má geta þess
að lokum, að nýlega kom á mark-
aðinn spólur frá fyrirtækinu með
meiri tóngæðum, en áður hafa
þekkst.
Sjónvarp með tölvustýrðri litsamhæfingu
Einar Farestveit & Co. hf. hefur
átt viðskipti við Japan í rúmlega
átta ár. Hefur fyrirtækið flutt inn
hljómflutningstæki, sjónvörp og
fleira frá japanska fyrirtækinu
Toshiba, en þetta fyrirtæki er
næst stærsta fyrirtæki í Japan og
framleiðir allt frá rafhlöðum og
upp í kjarnorkustöðvar. Starfsfólk
fyrirtækisins er 180 þúsund
manns, og gefur það glögga mynd
af stærð fyrirtækisins. Hluti þeirra
tækja, sem notuð voru í Búrfells-
virkjun kom frá þessu japanska
risafyrirtæki.
Arthur Farestveit, verslunar-
stjóri, sagði að Toshiba fyrirtækið
væri íeinkaeign, og væri það orðið
eitt hundrað ára gamalt. Er fyrir-
tækið með framleiðslu í Japan og
víða um heiminn. Keypti Toshiba
fyrirtækið m.a. Rank verksmiöj-
urnar í Bretlandi og yfirtóku rekst-
ur þeirra s.l. haust.
Toshiba fyrirtækið framleiðir
milli 30-35% af öllum myndlömp-
um í sjónvörp, sem notaöir eru í
heiminum, að sögn Arthurs. Þegar
Einar Farestveit hóf innflutning frá
Japan byrjaði hann á aö flytja inn
sjónvarpstæki, en síöan bættust
hljómflutningstækin við. Fyrirtæk-
ið selur nú hljómflutningstæki af
ýmsum gerðum frá Toshiba m.a.
sambyggð tæki. Einar Farestveit &
Co. hf. hefur einnig selt vasa-
reiknivélar, reiknivélar, mynd-
segulbandstæki og infra-rauða
ofna frá Toshiba.
Þau Toshiba litsjónvarpstæki,
sem Einar Farestveit & Co. hf.
býður nú upp á eru 14“, 18“ og
20“, en japanskir framleiðendur
hafa ekki leyfi til að selja stærri
tæki en 20“ á Evrópumarkaði
vegna samkeppni.
Arthur sagði, að nú væri komið á
markaðinn mjög fullkomin
Toshiba sjónvarpstæki, Black
Stribe 2, sem er með tölvustýrðri
litsamhæfingu, sem tryggir hreinni
og skærari liti, og hefur Einar
Farestveit & Co. hf. verið með
þessi tæki til sölu frá áramótum.
Einar Farestveit & Co. hf. hefur
pantað vörur frá fyrirtækinu í
gegnum aðalskrifstofu Toshiba í
Evrópu, en hún er í Frankfurt í V—
Þýskalandi. Þar fer einnig fram
gæöaeftirlit fyrir vörur sem fara á
Evrópumarkaö.
57