Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 65
UPPHAF ASÍUFÉLAGSINS”
■n
Japanir orönir dýrir
,,Þrátt fyrir að útgerðarvörur
Japana séu frábærar að gæðum,
eru þeir nú á nokkru undanhaldi í
samkeppninni", sagði Kjartan.
„Sl. 6-7 ár hafa því veiðarfæravið-
skipti okkar viö önnur Asíulönd
farið vaxandi, og sjáum við m.a.
sérstaklega aukna möguleika í
viðskiptum við Thailand, en okkar
stærsti viðskiptaaðili þar, Thai-
nylon, er að hálfu í eigu Japana.
Einnig hefur Asíufélagið, keypt út-
gerðarvörur í auknum mæli frá
Evrópu, t.d. plast- og nælonvörur
frá Noregi, tóg, net og flottroll frá
Englandi, Danmörku og Þýska-
landi. Og auk þess ýmsa járnvöru
s.s. víra, tengi og hlera frá Frakk-
landi og Englandi."
„Þjónusta við viðskiptavini okk-
ar er tvíþætt", sagði Kjartan,
„annars vegar að greiða götu til
beinna kaupa sem umboðsaðilar,
og hins vegar okkar lagersala,
sem fer hlutfallslega ört vaxandi."
íslendingar kröfuharðir um gæði
„Jú það koma oft upp kvört-
unarmál vegna veiðarfæra, sem
við höfum selt, en ég held að við
getum ekki borið okkur saman við
aðrar þjóðir hvað þetta varðar",
sagði Kjartan. „Við eigum ákaf-
lega dugmikla sjómenn, og
veiðarfærin eru undir miklu meira
álagi hér en nokkursstaóar ann-
arsstaðar, að því er virðist. Það er
því erfitt að meta gildi veiðarfær-
anna, því þaö sem hentar öðrum
fiskveiðiþjóðum þarf ekki að henta
okkur. Því er það ef til vill erfiðara
að þjóna útvegi á íslandi en ann-
arsstaðar, og þetta starf verður að
rækja af mikilli árvekni og hörku
svo að vel megi til takast", sagði
Kjartan Jóhannsson hjá Asíufé-
laginu.
Regnbogaplast h.f.
Búðargerði 7 — Kársnesbraut 18
Sími 85045
Pósthólf 207
Framleiðum:
Auglýsingaskilti úr plasti,
Þakrennur úr plasti,
Ath. sérsmíðum alls konar plasthluti,
Sjáum um viðgerðir og viðhald á ljósa-
skiltum.
63