Frjáls verslun - 01.03.1979, Side 68
Stórt og mlklð málverk af Vestmannaeyjum hangir á vegg í af-
greiðslusai Sparisjóðs Vestmannaeyja. Benedikt sparisjóðsstjóri fékk
sér sæti undir henni.
Frysting loönuhrognanna hefur sagt
verulega til sín í auknum tekjum
„Það hefur aldrei verið jafnmikil aukning í innlánum hér hjá
sparisjóðnum á fyrstu mánuðum ársins og núna í ár“ sagði
Benedikt Ragnarsson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Vest-
mannaeyja, þegar Frjáls verzlun bað hann að gefa nokkra
mynd af afkomu fólks í Eyjum eftir því sem hann kynntist henni
í starfi sínu. „Ég tel, að þessi þróun segi ákveðna sögu um
efnahag fólksins í bænum“, hélt Benedikt áfram. „Þetta er
loðnunni fyrst og fremst að þakka og þá kannski einkanlega
því að það hafa verið aukin svo verðmætin í meðferð aflans
núna.“
Benedikt átti þá við frystingu
loðnuhrogna en í því eru fólgin
geipileg verðmæti, sem ekki hafa
nýtzt á sama hátt áður. Það hefur
veriö mjög mikil vinna í kringum
loðnufrystinguna, sólarhringunum
saman. Þessar viðbótartekjur hjá
fólkinu hafa meðal annars stuðlað
að því að innlánsaukning hjá
sparisjóðnum fyrstu tvo mánuði
ársins hefur verið 10% miðað við
sömu mánuði í fyrra.
Sérstök lán vegna
hitaveitu
Á aðalfundi Sparisjóðs Vest-
mannaeyja, sem haldinn var í fyrra
mánuði kom meðal annars fram,
að heildarinnistæður hjá honum
námu í árslok 1878 719 milljónum
króna og höfðu aukizt um 52%,
sem er 3% umfram meðaltal á
landinu öllu. Útlánin námu í árslok
489,3 milljónum. Á aðalfundinum
var samþykkt að stofna sérstakan
flokk lána til að auðvelda þæjar-
búum að koma hitaveitu í hús sín.
Verða veittar allt að 400 þús. króna
lán til fjögurra ára á vaxtaaukaláni
á hverja íbúð vegna stofnkostnaö-
ar við inntak hitaveitu eða raf-
magnshitunar. Lánstíminn verður
allt að fjórum árum.
Til viðbótar þessu láni frá spari-
sjóðnum mun Útvegsbankinn í
Vestmannaeyjum ætla að lána
mjög svipaða upphæð, þannig að
húsráðendur þurfa mjög lítið að
leggja fram af eigin fé til þessara
framkvæmda. Heildarkostnaður á
hverja íbúð vegna inntaks hita-
veitunnar er að meðaltali um 650
þúsund krónur.
Ríflega lánað til
húsnæðiskaupa
Hjá Sparisjóði Vestmannaeyja
er það venja að lána 1,5 milljónir
króna til fimm ára vegna nýbygg-
inga, þar af ein milljón vaxtaauka-
lán er hálf milljón á víxli. Til kaupa
á eldra húsnæði lánar sparisjóð-
urinn eina milljón, sem skipt er
milli lánaforma í svipuðu hlutfalli.
Segja má að hver og einn geti
gengið að þessum lánum, sem þó
eru bundin viö búsetu í Eyjum.
Benedikt sparisjóðsstjóri kvað fólk
greinilega kunna að meta þessa
þjónustu og léti það í Ijós með því
að stofna til innlána í sparisjóðn-
um. Sagði Benedikt að sparisjóð-
66