Frjáls verslun - 01.03.1979, Page 70
Nýja flugstöðin í Vestmannaeyjum, sem er í byggingu.
enginn í Vestmannaeyjum, en eins
og gefur að skilja er rekin marg-
þætt þjónusta við bátaflotann og
hafa risið öflug fyrirtæki í kringum
þann rekstur. Stærstu vélsmiðj-
unnar eru Völundur, Magni og
Þór. Af netaverkstæðunum er
stærst Netagerð Ingólfs og Net
h.f. Vegna þess hvaö þessi fyrir-
tæki geta veitt góða þjónustu leita
skip í veiðiflotanum gjarnan til
Eyja, þegar þess er kostur og það
þýðir að fiskafla er landað þar í
leiðinni, t.d. á loðnuvertíðinni.
Þjónusta rafvirkja í Vestmannaeyj-
um þykir líka prýðileg og bátarnir
hafa einnig siglt þangað sérstak-
lega til að skipta við þá.
Ný andlit
Benedikt sagði, að í þeim hópi
manna, sem sezt hefði að í Vest-
mannaeyjum væru mörg ný andlit,
sem ekki hefðu átt heima áður í
Eyjum. Þetta væri fólk á ýmsum
aldri og hefði reynzt hinir ágæt-
ustu borgarar. Því væri ekki aö
leyna að margur misjafn sauður-
inn hefði haft þar styttri viðdvöl en
það fólk hefði farið aftur og ekki
frekar tollað í Vestmannaeyjum en
annars staðar.
Hafa kjör fólks oröiö jafngóð og
fyrir gos? Býr það jafnvel og áður
eða er það að vinna upp það sem
tapaðist vegna gossins?
68
Benedikt sagði Vestmannaey-
inga standa mjög jafnfætis öðrum
landsmönnum hvað lífsgæði
snerti. Auknar kröfur væru greini-
legar, bílaeignin hefði aukizt mjög
mikið og utanferðir. Ráðstöfunarfé
væri mikið og sagðist Benedikt
hafa ástæðu til að ætla Vest-
mannaeyingar væru svolítið
eyðslusamari en aðrir landsmenn.
Sagðist hann byggja þessa skoð-
un á því, að árið 1977 hefði aukn-
ing sparifjár í Vestmannaeyjum
verið nokkru minni en landsmeð-
altal. Utanlandsferðir hefðu verið
mjög áberandi á því ári og taldi
Benedikt að nokkuð yfir 1000
manns frá Vestmannaeyjum hefðu
þá farið til sólarlanda.
Kvistur á þakið
Eru menn þá harðari í því að slá
lán?
Benedikt sagöist ekki halda að
Vestmannaeyingar væru neitt
harðari í þeim efnum en fólk ann-
ars staðar á landinu. Við spurðum
þá, hvernig sparisjóðnum hefði
tekizt að halda útlánum undir
"þakinu”, sem Seðlabankinn
hefði sett.
"Okkur tókst það heldur illa”,
svaraði Benedikt sparisjóðsstjóri.
"Við fórum upp fyrir þetta þak. Við
settum bara kvist á þakið. Það var
ekkert annað að gera.”
Húsgafl í Eyjum. Á hann hefur verið
máluð mynd skólabarna til að minnast
upphafs gossins.