Frjáls verslun - 01.03.1979, Page 76
“Aðstaða matvöruverzlunarinnar
hér í Vestmannaeyjum hefur alveg
gjörbreytzt með tilkomu Herjólfs,
sem kemur daglega með mjólkur-
vörur og aðra viðkvæma matvöru
frá Þorlákshöfn”, sagði Georg
Hermannsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Vestmannaeyja, í við-
tali við Frjálsa verzlun.
Georg sagði, að miklu minna
öryggi heföi verið í þessum flutn-
ingum, þegar þeir voru á vegum
Ríkisskips, — ferðir strjálli og þar
af leiðandi hefðu gæði vörunnar,
þegar hún barst til Eyja, engan
veginn verið sambærileg við þaö
sem nú gerist.
Bílar með einangraða tengi-
vagna frá Herjólfi fara daglega i
mjólkursamsöluna í Reykjavík og
taka þar mjólkurafurðir, sem kom-
ið er fyrir í sérstöku mjólkurhólfi í
vögnunum. Kælistigið helzt næst-
um óbreytt alla leiðina til Eyja, en
mjólkin er komin um borð í Herjólf í
Þorlákshöfn rétt fyrir hádegi og
um fjögurleytið í verzlanir í Eyjum.
Áætlun Herjólfs hefur verið
ákveðin með tilliti til þessara flutn-
inga. Nú fer skipið daglega kl. 7,30
að morgni frá Eyjum og kemur til
Þorlákshafnar kl. 10,45. Þaðan fer
Herjólfur kl. 11,45 eða í síðasta lagi
á hádegi og er í Vestmannaeyjum
milli kl. 15 og 15,30.
Georg: „Vestmannaeyingar fara um landið á bílum sínum elns og aðrir
eftir að Herjólfur kom.“
Fleiri farþegar fóru sjóleið
Geysileg samgöngubót
Georg Hermannsson, sem einn-
ig er stjórnarformaður í útgeröar-
félagi Herjólfs, sagði þessar ferðir
vera geysilega samgöngubót fyrir
Vestmannaeyinga. I' fyrra voru
ferðir Herjólfs 357 talsins og flutti
hann samtals 40,367 farþega og
9027 bíla, en 8130 tonn af vörum.
Árið 1977 vóru ferðirnar aftur á
móti 270, farþegar 33,560, bílar
6858 og vöruflutningar 5570 tonn.
Fargjaldið með Herjólfi milli Eyja
og Þorlákshafnar er kr. 3000, kr.
1500 fyrir börn á aldrinum 6—12
ára eða skólafólk og ellilífeyris-
þega en frítt er fyrir 6 ára og yngri.
Fyrir bílinn greiða farþegar 2000—
2500 kr. eftir stærð farartækis.
Farmgjöld miöast við að vera hin
sömu og meö Ríkisskip frá
Reykjavík. Obbinn af öllum vörum,
sem fluttar eru með Herjólfi fara
með tengivögnum frá vöruaf-
greiðslunni í Reykjavík en hún er
hjá Matkaupum í Vatnagöröum.
Fimm lokaðir tengivagnar eru not-
aðir til flutninganna og einn opinn,
sem aðallega er fyrir þungavörur
eins og timbur og járn. Eru jafn-
aðarlega tveir vagnar um borð í
Herjólfi í hverri ferð til Eyja og geta
þeir borið 22—25 tonn hvor.
Til viöbótar ferðum Herjólfs hafa
Vestmannaeyingar þjónustu Rík-
isskips, sem flutti milli 900 og 1000
tonn af vörum til Eyja í fyrra og
Eimskip er jafnaðarlega með viku-
legar ferðir til Vestmannaeyja,
aðallega fyrir áframhaldandi frakt
frá útlöndum, sem umskipað er í
Reykjavík. Skip Eimskipafélagsins
eru þó oftar í Vestmannaeyjum til
að sækja afurðir þangað til út-
flutnings.
Tap á rekstrinum.
Flugsamgöngur eru enn sem
fyrr mjög þýðingarmiklar fyrir
Vestmannaeyinga og taldi Georg
Hermannsson, að fólk tæki þær
yfirleitt fram yfir Herjólf ef viðraði til
flugs. I fyrra mun það hins vegar
hafa gerzt í fyrsta skipti á síðari
áratugum að farþegar milli lands
Herjólfur flutti yfir 40
þúsund farþega og
rúmlega 9000 bíla.
Skipið hefur gerbreytt
aðstöðu matvöru-
verzlunar í Eyjum til
öflunar viðkvæmrar
vöru eins og mjólkur
og mjólkurvara
og Eyja urðu fleiri sjóleiðis en í
flugi.
Reikningar fyrir útgerð Herjólfs í
fyrra liggja ekki endanlega fyrir
enn. Hins vegar sagðist Georg
gera ráð fyrir að rekstrartap myndi
nema 10—15 milljónum króna.
Tekjurnar í fyrra námu 248 mill-
jónum. Framlag ríkisins til Herjólfs
var þá 57,5 milljónir. Vanskil, sem
skapazt hafa vegna taps fyrri ára
eru útgerðinni mjög þungbær.
74