Frjáls verslun - 01.07.1979, Blaðsíða 69
Akranes hefur löngum verið talinn elnn af stærstu útgerðarbæjum
landsins. Akranes varð kaupstaður í júní 1941 en fræðimenn telja að
Akranes hafi verið fyrsta sjávarþorpið sem myndaðist á íslandi og
ástæðan verið mikil fiskgengd í Faxaflóa og Hvalfirði á 17. öld. Útgerð-
armenn á Akranesi hafa alla tíð þótt stórir ísniðum og gerðu einnig út frá
verstöðvum á Reykjanesi hér áður fyrr. Þeir reistu miklar verbúðir í
Sandgerði og hafa þar með lagt grunninn að þeim útgerðarbæ. Akra-
neskaupstaður stendur á jörðinni Skipaskagi í landnámi Ketils Bresa-
sonar. íbúafjöldi á Akranesi rúmlega tvöfaldaðist á 25 ára tímabili frá
1925—1950 og jókst síðan um 79% á næsta 25 ára tímabili frá 1950-
1975. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu íslands var íbúatala
Akraness 4752 1. des. 1978.
armenn í rafvirkjun, húsasmíði og
málmgreinum. Nemarnir þurfa
ekki að vera á samningi hjá meist-
ara en þeir starfa úti í fyrirtækjum
ákveðinn hluta námstímans. Þá
útskrifar fjölbrautaskólinn einnig
vélstjóra 1. stigs og næsta vetur
mun verða starfrækt undirbún-
ingsdeild að tækninámi. Næsta
vor mun skólinn útskrifa 12—15
stúdenta, en það verða jafnframt
fyrstu stúdentarnir sem Ijúka því
námi á Akranesi. Bóknámsmennt-
un á raungreinasviðinu felst í eðl-
isfræði, náttúrufræði og viðskipta-
braut, en úr viðskiptabraut geta
nemendur lokið verzlunarprófi
eöa haldið áfram og lokiö stúd-
entsprófi. Þá er um að velja
tæknibraut og hjúkrunarbraut.
Útgerðin slær
taktinn
Útgerðin hefur gengið nokkuð
vel frá Akranesi það sem af er ár-
inu þegar það er borið saman við
heildina. 3 skuttogarar hafa verið
gerðir út og unnið hefur verið að
því að fá þann fjórða. Til marks um
það hve atvinnulífið er enn háð
útgerðinni nefndi Magnús Odds-
son sem dæmi, að nú í vetur hefði
einn skuttogarinn bilað og verið
lagt á meðan viðgerð fór fram. Þá
hefði tala atvinnulausra hækkaó
úr 1 í 50—60 manns við það að eitt
frystihúsanna varð að loka vegna
hráefnisskorts. Sagði Magnús að
þessi tala atvinnulausra segði þó
ekki nema hálfa söguna. Þetta
væru einungis þeir sem væru án
vinnu og hefðu jafnframt rétt til at-
vinnuleysisbóta. Fjölmargar hús-
mæöursem heföu misst atvinnuna
hefðu ekki farið á skrá þar sem
önnur fyrirvinna væri á heimilinu
og þær hefðu því ekki rétt til bóta.
Fyrir utan þessa tímabundnu
stöövun hefðu aflabrögð togar-
anna verið sæmileg. Á loönuver-
tíðinni varö Bjarni Ólafsson annað
hæsta skipið á landinu en það er
eitt af fullkomnustu nótaskipum
landsins. Togarinn Víkingur, sem
einnig er gerður út frá Akranesi,
varð 4. hæsta skipið á loðnuver-
tíðinni en honum var breytt í nóta-
Magnús Oddsson, bæjarstjóri,
á fundl með samstarfsmönnum sínum.
69