Frjáls verslun - 01.07.1979, Blaðsíða 82
til umrædu
Rekstur fríhafnarverzlunar boðinn út?
í hringlandahættinum og stjórnleys-
inu, sem er að keyra allt um koll hjá
ríkisstjórninni og stuðningsmannahóp
hennar, koma þó öðru hverju fram hug-
myndir hjá einstaka ráðherra, sem allrar
athugunar eru verðar og sýnast horfa til
bóta ef af framkvæmdum yrði. En það er
að vísu svo margt, sem þingmenn
stjórnarflokkanna og ráðherrar hafa lát-
ið sér detta í hug og frá þeim hefur farið
opinberlega þótt engin alvara sé þar að
baki. Hugmyndir eru settar fram í ein-
hverju fljótræði eða sem mótleikur í
stöðugu pókerspili stjórnarflokkanna
innbyrðis eða gagnvart hagsmunasam-
tökum út á við. Það fylgir sjaldnast
nokkuð á eftir í raunhæfri framkvæmd.
Eitt mál af þessu tagi er hugmynd,
sem fjármálaráðherra viðraði nýlega um
útboð á rekstri fríhafnarinnar á Kefla-
víkurflugvelli. Við vitum alls ekki enn,
hvort sá mæti maður var að mæla af
fullri hreinskilni og segja hug sinn allan
eða hvort upp á þessu var fitjað í því
augnamiði einu að þagga niður í nokkr-
um starfsmönnum fríhafnarinnar, sem
höfðu gert uppsteyt út af launadeilu við
fjármálaráðuneytið og neituðu að af-
greiða ódýrt brennivín ofan í landann.
Hvort sem ráðherrann telur ástæðu til
að nefna þessa hugdettu sína aftur eða
ekki, skal undir hana tekið hér. Þó að í
litlu sé, er hér á ferðinni tillaga um sam-
drátt í ríkisumsvifum innan þjónustu-
greinar, sem hið opinbera þarf ekki og á
ekki að vera að vasast í. Þar með er ekki
sagt að ríkið verði að þola tekjumissi, ef
sú tilhugsun færi fyrir brjóstið á ein-
hverjum, þótt rekstri fríhafnarverzlun-
arinnar yrði afsalað í hendur einkaaðila
eða félaga. Með ýtrustu hagræðingu í
starfsmannahaldi og hagsýni að leiðar-
ljósi í öllum rekstri eins og einkafram-
takinu er bezt treystandi til þarf ábati
ríkisins af fríhöfninni ekkert að minnka
frá því sem nú er.
Einhverjir kunna að spyrja, hvort
þetta útboðsfyrirkomulag brjóti ekki í
bága við lög og venjur um einkasölu
ríkisins á áfengi og tóbaki. Svo er alls
ekki og ber í því sambandi að minnast
meðferðar flugfélaga og skipafélaga á
tollfrjálsu áfengi og tóbaki handa far-
þegum sínum og því eftirliti, sem inn-
lend tollyfirvöld hafa haft með birgða-
geymslum þessara aðila og afgreiðslu
varnings frá þeim.
Á Kastrup-flugvelli í Kaupmanna-
höfn, sem margir íslendingar eiga leið
um, er rekin fríhafnarverzlun með
áfengi og tóbak. Það er ekki danska rík-
isstjórnin, sem stendur í þeirri kaup-
mennsku frá degi til dags. Hún lætur
aðra um það. Því fer þó fjarri að danska
ríkið fari með þessu á mis við einhverjar
tekjur, sem það ella hefði. Fríhafnar-
reksturinn er boðinn út og samið við
hæstbjóðanda. Til skamms tíma var það
SAS-flugfélagið, nokkurs konar ríkis-
flugfélag í Danmörku, sem annaðist
þessa verzlun. Það skilaði til danska rík-
isins verulegum upphæðum. En aðrir
gátu gert betur. Það sannaðist, þegar
samningar við SAS runnu úr gildi og
fríhafnarreksturinn var boðinn út.
Danska leiguflugfélagið Sterling Air-
ways, sem er í einkaeign, bauð ríkinu
56,5% af heildarveltu verzlunarinnar en
SAS 44%.
Það er fyllilega tímabært að fara þessa
leið varðandi fríhöfnina á Keflavíkur-
flugvelli. Það á að stíga skrefið til fulls og
bjóða alla verzlun fríhafnarinnar út.
Vonandi yrði það fyrirboði enn frekari
breytinga í sömu átt hjá ríkinu.
82