Frjáls verslun - 01.07.1979, Blaðsíða 79
I
þess að það sé grunnað fyrst, og
aðeins ein umferð er máluð. Þetta
efni er ótrúlega slitsterkt auk þess
sem það veitir örugga vernd gegn
ryði og enda þótt stofnkostnaður
sé ívið meiri en þegar notuð er
venjuleg málning er þarna komin
margfalt ódýrari lausn þegar fram í
sækir.
— En þið hafið í fleiri horn að líta
en ryðvarnarefnin eingöngu?
— Já, innflutningur á loftpress-
um leikur einnig stórt hlutverk hjá
okkur. Þar er einkum um að ræða
dönsku Stenhöj loftpressurnar, en
af þeim er komin mikil og góð
reynsla hérlendis síðustu 15 árin.
Langmest sala er í litlum og með-
færilegum loftpressum sem t.d.
múrarar nota til að „vrappa" meó,
en einnig er mikið keypt af þessum
tækjum til aö knýja vélar og áhöld
sem ganga fyrir þjöppuðu lofti. Þar
er t.d. um að ræða smurdælur o.fl.
þ.h.
Síðan má nefna innflutning okk-
ar á hinni vinsælu Racing olíu,
sem kappakstursmenn og kvart-
mílukappar um allan heim nota, en
hérlendis er það Esso sem annast
dreifingu fyrir okkur á þessari
olíutegund. Einnig flytjum við inn
alls konar verkstæðisútbúnað, s.s.
hjólatjakka, „ballanseringarvélar",
bílalyftur o,fl. o.fl.
Og svona í lokin er kannski rétt
að segja frá öryggishólfunum sem
vió erum núna komnir með. Þau
hafa vakið nokkra athygli, og þá
ekki sízt vegna þess hve fyrir-
ferðalítil þau eru, en þó örugg,
eins og öll öryggishólf ættu að
vera. Vió teljum þessi hólf heppi-
leg fyrir bæði einstaklinga og
smærri fyrirtæki, sem vilja vita af
pappírum sínum á öruggum stað
þegar farið er í sumarfrí eða annað
þess háttar.
I
cMLAMI
SEACH
NÆSTU 3JAVIKNA FERDER VERDA:
9 120 30
ágúst | ágúst ágúst
Búiö er á lúxus hóteli
Konover og í Flamingo
Club hótel— íbúöum.
Um margs konar verö er
aö ræöa, t.d. getum við
boðið gistingu í tvíbýlis-
herbergi og feröir
fyrir kr.: 326.000 -
en ódýrari gisting er
einnig fáanleg búi t.d. 5
fullorðnir saman í íbúð.
Kr. 299.000 pr. mann.
Fyrir börn er veröiö rúm
lega helmingi lægra.
n
FLUGLEIÐIR
Nánari upplýsingan
Söluskrifstofur okkar
Lækjargötu 2 og Hótel Esju
sími 27800. farskrárdeild,
sími 25100, skrifstol'ur okkar
úti á landi.umboðsmenn og
í'erðaskrifstofur.
79