Frjáls verslun - 01.07.1979, Side 81
efni til frárennslislagna á einum og
sama staðnum.
Framleiðni — byggingarkostnað-
ur
Auk þess sem Rörsteypan hf
framleiðir öll steypt rör til grunn-
lagna og holræsa, þar með taldir
brunnar, hafa þeir einnig á boð-
stólum steyptar tröppueiningar,
rennusteina, kantsteina, brunn-
steina og vegghleðslusteina í mis-
munandi stærðum. Einar Þ. Vil-
hjálmsson sagði það vera dálítið
undarlega staðreynd, að Reykja-
víkurborg hefði stýrt verðþróun á
þessari framleiðslu á undanförn-
um árum. Borgin ræki eigin pípu-
gerð og svo virtist sem verðlagn-
ing Borgarinnar á sinni framleiðslu
hefði gilt fyrir iðnaðarfyrirtækin á
þessu sviði. Þetta væri, að hans
mati mjög óeðlilegt vegna þess að
pípugerð Borgarinnar væri alls
ekki með fullkomnustu tækin til
þessarar framleiðslu, en eðlilegt
væri aö framleiönin stýrði verð-
þróuninni. Einar benti t.d. á að
Rörsteypan hf gæti boðið hol-
ræsarör á lægra verði en Borgin
setti upp fyrir sína framleiðslu.
Hinsvegar hefði Borgin komið sér
upp einokunaraðstöóu á þann hátt
að gera það að skilyrði við útboð á
holræsalögnum, aö efni frá pípu-
gerð Borgarinnar væri notað.
Jafnvel þótt Rörsteypan hf gæti
framleitt þau rör á hagkvæmari
hátt, vegna mun fullkomnari véla,
væru skattgreiðendur látnir borga
meira fyrir holræsin en þeir þyrftu
vegna lítillar framleiðni í fyrirtæki
Borgarinnar. Við þessar aðstæður
sagðist Einar ekki geta komið
auga á neitt sem réttlætti tilveru
Pípugerðar Reykjavíkurborgar, —
hún stæðist ekki samkeppni á
frjálsum markaði.
Lóðasjóður og fyrirtækjaflótti
Einar Þ. Vilhjálmsson kvað Lóða-
sjóö Reykjavíkurborgar vera gott
dæmi um aðferðir til þess að
hrekja iðnfyrirtæki frá Reykjavík.
Húsbyggjendur eiga kost á láni í
formi skuldabréfs til tveggja og
hálfs árs, taki þeir út vörur frá
framleiðslufyrirtækjum Reykjavík-
urborgar til frágangs á lóðum.
Þannig væri verið að bjóða dýrari
vörur með greiðsluskilmálum, sem
ekkert fyrirtæki á frjálsum markaði
gæti boðið. Með láni úr Lóðasjóði
gæti Borgin greitt niður dýr rör frá
sinni eigin pípugerð. Á sama tíma
og þessir viðskiptahættir eru látnir
viðgangast er haldinn hver fund-
urinn af öðrum vegna þess vanda,
sem fyrirtækjaflóttinn frá höfuð-
borginni er orðinn.
Plastið mun ekki leysa steypuna
af hólmi
Eins og kunnugt er hafa plaströr til
frárennslislagna komió á markað-
inn á undanförnum árum og nú
síðast til grunnlagna. ,,Sumir virð-
ast halda að plastið muni ryðja
steyptum rörum út af markaðin-
um", sagði Einar. ,,Þetta er mis-
skilningur. Þótt undarlegt hljóti að
teljast eru komnar alls konar regl-
ur um frárennslislagnir, sem bein-
línis eru settar vegna tilkomu
plastsins, sem engin teljandi
reynsla er komin á í landinu.
Þannig er t.d. komin upp sú regla,
að þar sem 4 tommu plaströr er
leyft, er þess krafist að samsvar-
andi steypurör sér 6 tommur. Að
baki þessarar reglu er heimatilbú-
in fullyrðing um að rennslismót-
staða sér meiri í steinröri en plast-
röri, atriði sem ekki fær staðist
samkvæmt niðurstöðum margra
tilrauna t.d. við Tækniháskólann í
Þrándheimi. Á Norðurlöndunum
er viðurkennt að frárennslislagnir
úr steypurörum eru mun ódýrari
en sambærilegar lagnir úr plasti,
þegar upp er staðið. Gæði og
endingu lagna úr steypurörum
þekkjum við og vitum að er full-
nægjandi, sambærileg reynslu af
grunnlögnum úr plasti höfum við,
á hinn bóginn ekki fyrir hendi. Það
er engin furða þótt fólk haldi að
plastið sé tekið við, — opinberar
stofnanir hafa jafnvel tekið að sér
að halda skipuleg sölunámskeið
fyrir plaströr þar sem látið er að því
liggja, að plaströr séu það eina
sem stenzt kröfur tímans. Stað-
reyndin er sú, að grunnlagnir úr
steypurörum, sem þétt eru með
gúmhringjum, eru ódýrari þegar
öllu er á botninn hvolft auk þess
sem þau spara þjóðinni gjaldeyri.
— Ég hef ekki heyrt að Iðntækni-
stofnum íslands sé með námskeið
í bígerð þar sem notkun, þétting,
hagkvæmni, ending og sparnaður
við notkun gúmþéttra grunnlagna
úr steypu verður tynnt fyrir pípu-
lagningarmönnum og fleirum, en
ég á ekki von á öðru en að þeir
haldi slíkt námskeið — annað væri
óeðlilegt", sagði Einar Þ. Vil-
hjálmsson að lokum.
Hver
selur
hvað?
Þegar þu þarft að afla þér
upplýsinga um hver hafi umboð
fyrir ákveðna vóru eða selji hana
þá er svarið að finna i ISLENSK
FYRIRTÆKI sem birtir skrá yfir
umboðsmenn vöruflokka og
þjónustu sem islensk fyrirtaeki
bjóða upp á.
Sláið upp í
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
V__________________J
81