Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 83
Friðgeir Axfjörð við vinnu sína, eintak af Á skjánum fæðist í þessum
ofsettfjölritara.
Gísli ritstjóri á fslendingi, — minni pólltfk, meira af fréttum úr
byggðarlaginu.
Sjónvarpsblöðin
Þá má nefna þjónustu sem
Akureyringar einir eru aðnjótandi.
í hverri viku er stungið í póstkass-
ana þeirra sjónvarpsdagskrá
næstu viku. Það er ekki aðeins
einn aöili sem stendur fyrir slíkri
útgáfu, heldur tveir. Þetta eru
Dagskráin og Á skjánum.
FV hitti að máli Friðgeir Axfjörð,
sem sér um útgáfuna á Á skjánum.
Hann kvað ritið gefið út í 5000
eintökum og væri því dreift í hvert
hús á Akureyri og um Eyjafjörð
fólki að kostnaðarlausu. Auglýs-
ingarnar sem berast orðið sjálf-
krafa, greiða allan kostnað af út-
gáfunni. í blaðinu er að finna dag-
skrá sjónvarps, gífurlegan fjölda
auglýsinga og vinsælar matar-
uppskriftir.
,,Við höfum fengið aö finna fyrir
því að blaðið er lesið og notað,"
sagði Friðgeir Axfjörð. ,,Það henti
nefnilega einu sinni að uppskrift
skolaðist til. Upphringingarnar
voru margar og vió fengum aldeilis
að heyra það óþvegið. Við gætum
okkar líka vel að verða ekki á í
messunni öðru sinni," sagði Frið-
geir.
- og bæjarblöðin færa út kvíarnar
83