Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 70
• SKJALASKÁPAR
fyrirliggjandi með 2, 3 og 4 skúffum í A 4 og
folíóstærðum.
• PENINGASKÁPAR
• SPJALDSKRÁRSKÁPAR
í DIN og ensk,um stærðum.
EGILL GUTTORMSSON
SUÐURLANDSIÍRAUT 4 — SÍMI 82788
/*
„Svona er þetta nú oft á þessum
bæ,“ sagði Gunnar Ragnars, for-
stjóri Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri, þegar fréttamenn FV bar að
garði. Hjá stöðinni þennan dag
var sannarlega nóg að starfa við
botnhreinsanir á skipum hvaðan-
æva að af landinu.
„Þetta ástand er þó ekkert til aö
byggja á fyrir skipasmíðastöð með
300 manns ívinnu," sagði Gunnar.
„Staðreyndin er sú að við höfum
engin verkefni á borðinu hjá okkur
og það verður ekki annað sagt en
að það er hrikalegt að reka þetta
svona áfram. Ef svo heldur áfram,
þá er ekki annað að sjá en að
verulegur samdráttur muni verða
hjá fyrirtækinu. Meðan ekki er
unnið að nýsmíðum jafnframt við-
gerðum og viðhaldi þá er stöðug-
leikinn lítill. Þegar kemur fram á
vertíðina er ekki lengur um þessi
verkefni við botnhreinsanir að
ræða,“ sagði forstjórinn.
17. stærsta fyrirtæki
landsins
Slippstöðin er mikið fyrirtæki á
íslenzkan mælikvarða. Á lista
Frjálsrar verzlunar á síðasta ári var
Slippstöðin 17. stærsta fyrírtæki
landsins með 12.788 tryggðar
vinnuvikur og 246 starfsmenn að
meðaltali yfir árið. Undanfarin ár
hefur fyrirtækið verið að þokast
upp þennan lista stærstu fyrir-
tækjanna. Þá er fyrirtækið 19.
hæsti skattgreióandi meðal fyrir-
tækja landsins.
„Okkar helzti styrkur hér er sér-
hæfing í að útbúa fiskiskip. Og hér
höfum við safnað að okkur dýr-
mætri tæknikunnáttu, sem okkur
finnst að eigi að nýtast sem allra
bezt. Okkar draumur er sá að við
getum byrjað að smíða fiskiskip
eftir okkar eigin teikningum, án
þess að hafa endilega kaupanda
tiltækan, kaupandinn birtist fyrr
eða síðar. Ég get ekki sagt að
stjórnvöld séu blind í þessum
vanda skipasmíðanna. Líklega er
vandamálið í þessu kerfi okkar að
enginn tekur af skarið og of margir
aðilar koma við sögu hverju sinni.
Þetta er ekki heldur bankamál,
heldur mál sjóðanna. Það virðist
eins og að sjávarútvegssjóðirnir
séu ekki fyrir iðnaðinn, og öfugt.“
70