Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 74
Ofnasmiðja Norðurlands:
Þar heldur kona
Guðrún ræðir við starfsmenn sína eftir vinnu. Það þarf að herða róð-
urinn á næstunni, meiri verkefni og meiri afköst. Málið er rætt af öllum
og niðurstaða fengin.
„Það vilja margir að ég snúi mér að
einhverju kvenlegra,“ segir Guðrún
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
„Ég hef oft verið spurð þessarar
spurningar. Hvað er kvenmaður
að sunnan að vasast í einhverju
járnadóti fyrir norðan? Margir
hafa líka reynt að fá mig til að
snúa mér að einhverju kvenlegra,
til dæmis að setja upp snyrtivöru-
búð. En ég er ákveðin í að halda
áfram að framieiða ofnana og
kann vel við starfið." Þetta sagði
Guðrún Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ofnasmiðju
Norðurlands h.f. á Akureyri.
Trúlega er Guðrún fyrsta og
eina konan hér á landi sem tekið
hefur sér fyrir hendur að stjórna
málmiðnaðarfyrirtæki. Hvernig
gerðist það svo?
,,Það æxlaðist nú þannig til að
ég og fyrrverandi eiginmaður
minn, Birgir Þorvaldsson, stofn-
uðum og rákum fyrirtækið Runtal í
Reykjavík. I’ ársbyrjun 1971 stofn-
uðum við svo fyrirtækið hér ásamt
þeim Alfreð Möller, Kára Her-
mannssyni og Eggert Stefánssyni.
Ég fór strax að hjálpa Birgi í fyrir-
tækinu fyrir sunnan, enda ærið að
gera. Það tilheyrði að hlaupa frá
húsverkunum þetta 2—3 tíma á
dag. Fljótlega var ég að vinna oft til
12 á miönætti. Þannig byrjaði ég
að vinna í þessari grein meira af
rælni en að ég ætiaði mér að fara
út í þessa iðn. Nú og svo endaði
það með því að ég hélt hingað
norður og tók við stjórn fyrirtækis-
ins," sagði Guðrún Einarsdóttir.
Nú á Guðrún fyrirtækið ásamt
sínu nánasta fólki. í stjórn Ofna-
smiðju Norðurlands eru einungis
konur, fimm talsins.
Pantanir hrannast inn
„Hefði ég vitað hvaða erfiðleikar
mundu mæta mér að reka svona