Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 9
Valur Valsson, aðstoðarbankastjóri Iðn-
aðarbankans, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda frá
og með næstu áramótum.
Valur er fæddur 11. febrúar 1944. Hann út-
skrifaðist úr MR 1964 og lauk viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla íslands 1970.
,,Það eru að því leytinu tengsl milli Iðnaðar-
bankans og Félags íslenskra iðnrekenda að
það er samstarf á milli þessara aðila og bankinn
þekkir þau verkefni, sem unnið er að, og oft eru
það sömu verkefnin, sem þessir aðilar vinna
að," sagði Valur.
Valur var spurður um markmið Félags ís-
lenskra iðnrekenda.
„Það er margþætt eins og gefur að skilja. Ef
við tökum saman markmið í stutt mál þá má
segja að iðnaðurinn sé undirstaða bættra lífs-
kjara á landinu. Félagið vill stuðla að atvinnu-
öryggi þeirra sem við iðnað starfa og skapa ný
atvinnutækifæri og að þessum markmiðum
fellur starf framkvæmdastjórans."
Valur kvað hið nýja starf sitt leggjast mjög vel
í sig. „Þetta er spennandi viðfangsefni. Núna
um áramótin falla niður tollar gagnvart aðildar-
löndum EFTA og mun þá íslenskur iðnaður
standa í fullri og óverndaðri samkeppni vió
Evrópulönd.
„Jú, það verða eflaust einhverjar breytingar
á högum manns. Starfið í bankanum er frekar
sérhæft, en það fylgja því mikil tengsl við annað
fólk og svo held ég að verði einnig með starf
mitt sem framkvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda," sagði Valur.
Eiginkona Vals er Guðrún Sigurjónsdóttir og
eiga þau einn son.
Ragnar Birgisson var hinn fyrsta júlí sl. ráð-
inn framkvæmdastjóri Sanitas h.f. Ragnar er
fæddur 1952. Hann lauk stúdentsprófi úr MR
1972 og viðskiptafræðiprófi úr Háskóla íslands
1976. Árið eftir fór hann til London og lagði
stund á rekstrarhagfræði og lauk þaðan prófi í
vor. Ragnar hefur áður unnið hjá Sana á Akur-
eyri og Framkvæmdastofnun ríkisins.
Ragnar var spurður að því hvernig honum
líkaði við starfið. „Ágætlega. Þegar ég kom til
starfa var sameining Sana og Sanitas ekki að
fullu gengin í gegn, þannig að ég hef getað
tekið þátt í sameiningunni. Nú er í fullum gangi
verið að endurskipuleggja fyrirtækið og vinna
því sess á markaðnum.
Við höfum nýlega aukið við og bætt bílaflota
okkar og dreifingakerfið hefur verið endur-
skipulagt. Sana dreifir nú framleiðslunni fyrir
norðan og austan en Sanitas fyrir sunnan og
vestan. Við höfum nýlega keypt 6 nýjar flutn-
ingabifreiðir sem koma munu til að styrkja
dreifikerfi okkartil muna.
— Við höfum komið á markaöinn með nýjan
drykk, Diet Pepsi. Hann er alveg sykurlaus en
bragðast eins og venjulegt Pepsi. Síðan erum
farnir af stað með dreifingu á nýjum glerjum
fyrir Pepsí í lítra.
— Seven up hefur undanfarin ár notið sí-
vaxandi vinsælda sem aó mörgu leyti má þakka
nýjum umbúðum."