Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 3
frjáls
verzlun
9. tbl.
1979
Sérrit um efnahags- viðskipta-
og atvinnumát.
Stofnað 1939.
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Jóhann Briem.
RITSTJÓRI:
Markús Örn Antonsson.
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Pétur J. Eiríksson
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI:
Ingvar Hallsteinsson.
BLAÐAMAÐUR:
Sigurður Sigurðarson.
AUGLÝSINGADEILD:
Linda Hreggviðsdóttir.
Guðný Árnadóttir.
LJÓSMYNDIR:
Loftur Ásgeirsson.
SKRIFSTOFUSTJÓRN:
Anna Kristín Traustadóttir.
Anna Lísa Sigurjónsdóttir.
Martha Eiríksdóttir.
Timaritið er gefið út i samvinnu
við samtök verzlunar- og
athafnamanna.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18.
Símar: 82300 - 82302.
Auglýsingasími: 82440.
SETNING OG PRENTUN:
Prentstofa
G. Benediktssonar.
BÓKBAND:
Félagsbókbandið hf.
LITGREINING Á KÁPU:
Korpus hf.
PRENTUN Á KÁPU:
Prenttækni hf.
Áskriftarverð kr. 1495 á mán-
uði. Jan—apríl kl. 5980.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
FRJÁLS VERZLUN er ekki ríkis-
styrkt blað.
Til lesenda...
ÍSUNZK
ÁLVINNSIA
lOára
Nýútkomið afmælisrit Islenzka álfélagsins
"Islenzk áluinnsla 10 ára" markar nokkur tíma-
mðt I útgáfustarfsemi okkar hjá Frjálsu f.ram-
taki. filfélagið leitaði eftir samvinnu við
okkur um að annast útgáfu á þessu riti, sem
athygli hefur vakið fyrir sérlega glæsilegan
frágang. Efnisvinnsla og uppsetning, þar á
meðal gerð llnurita og ljósmynda I litum fér
fram hér á landi en prentunin var unnin hjá
sömu prentsmiðjunni I Bandaríkjunum og vinnur
tízkublaðið Llf fyrir okkur.
Islenzka álfélagið hefur stigið athyglisvert
skref með þessari útgáfu sinni. Það hefur sett
öðrum fyrirtækjum visst fordæmi, sem ekki er
ésennilegt að breytt verði eftir. Atvinnurekst-
urinn I landinu hefur alltof lítið gert til aö
kynna sig, en mönnum er nú óöum aö skiljast
nauðsyn þess aö fyrirtækin hafi sig I frammi
og láti til sín heyra til mótvægis öllum þeim
einhliða áróðri gegn framtaki I atvinnulífinu,
sem látlaust er stundaður I þessu þjóðfélagi
eins og öðrum I hinum vestræna heimi.
Eftir 10 ára starfsemi álversins 1 Straumsvík
liggja fyrir stóreftirtektarverðar upplýsingar
um áhrif þess á afkomu Hafnarfjarðarbæjar og
Hafnfirðinga. fi sínum tlma sóttu forsvarsmenn
Hafnarfjarðarkaupstaðar fast á að fá hina nýju
álverksmiðju staösetta hjá sér og hafa haft af
þvl drjúgan ábata með framleiðslugjaldi álfél-
agsins til bæjarins og gjöldum af þeim einstakl-
ingum, sem atvinnu hafa hjá þvl. Ritiö "Islenzk
álvinnsla 10 ára" sýnir með óyggjandi tölum,
hvaða ávinning einstök byggðarlög og þjóöarbúið
I heild geta haft af skynsamlegri uppbyggingu
stóriðju.
3