Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 33
sion sr^viT
British Airways
í eriðleikum______
Sigurður P. Sigmundsson
BRITISH AIRWAYS á í miklum
erfiðleikum um þessar mundir,
eins og reyndar flest önnur
flugfélög. Fjárhagsstaðan er
sögö sú alvarlegasta í 30 ár. Eftir
fyrstu 9 mánuði fjárhagsársins
apríl 1980 — mars 1981, vantaði
300 milljónir sterlingspunda upp
á að upphafleg tekjuáætlun
stæðist. Beint tap var þá um 40
milljónir punda. Búist er við aö
þessar tölur hækki upp í 400
milljónir og 100 milljónir punda,
áður en gert verður upp í lok
mars.
Á síðasta ári varð 6% fækkun
farþegaflutninga á vegum B.A.,
miðað við árið áður, er 10%
aukning átti sér stað. Áttundi
áratugurinn haföi verið mjög
hagstæður, meðal farþega-
aukning um 10% á ári. Sú þróun
gaf bjartsýninni lausan tauminn.
B.A. áætlaði að auka farþega-
flutningana úr 17 milljónum
1978 í 27 milljónir árið 1986,
sem samsvarar 65% aukningu.
Til að ná til fjöldans voru fargjöld
lækkuð verulega. Önnur flugfé-
lög gerðu hið sama. Afleiöing-
arnarkomufljóttíljós. Hin harða
samkeppni um farþegana hefur
minnkaö sætanýtingu verulega.
Leiðir sem áður gáfu vel af sér
t.d. til Hong Kong og yfir
Norður-Atlantshafið, eru ekki
lengur arðbærar.
Til viðbótar aukinni samkeppni,
þá hefur allur rekstrarkostnaður
hækkað geysilega og þá sér-
staklega eldsneytiskostnaður.
B.A. gerir ráð fyrir að kostnaöur
vegna eldsneytis muni aukast úr
413 milljónum punda árið
1980— 81 í yfir 500 milljónir
1981— 82, þrátt fyrir niðurskurð
á flugumferð. Stöðugt hátt
gengi á pundinu hefur einnig
gert félaginu erfitt fyrir, m.a. rýrt
dollara tekjurnar til muna.
Félagið hefur ekki farið varhluta
af vaxandi óvissu á vinnumark-
aðinum. Starfsfólk B.A. á
Heathrowflugvellinum í London
sem er um 20.000, fór í eins dags
verkfall 23. jan. sl. til að herða á
kröfum sínum um 20% kaup-
hækkun. B.A. hefur boðið 8%.
Um miðjan febrúar sl. tilkynntu
starfsmannafélögin að fram-
undan væri röð af skyndiverk-
föllum, þar til samningar næð-
ust.
Sem dæmi um áhrif slíkra verk-
falla á B.A. má nefna að verkfall-
ið í janúar hafði í för með sér að
0
33