Frjáls verslun - 01.03.1981, Síða 39
volvo fréttir
1 1981
Útgefandi: Félag Volvoeigenda á íslandi, Suðurlandsbraut 16.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Hjartarson.
Stœrri framljós, breyttur stuðari, og svartir mattlistar við gtuggana gefa
bifreiðinni skemmtilegan svip.
Miklar
breytingar á
1981 árgerðinni
af 240 og 260
Ný árgerð Volvobifreiða, 1981, er
nú komin á markaðinn fyrir nokkru
og hafa breytingarnar er gerðar hafa
verið frá fyrri árgerðum vakið mikla
athygli, enda eru þær hinar mestu frá
því að framleiðsla Volvo 240/260
gerðanna hófust árið 1974. Segja má
að í 1981 árgerðinni sé fyrst hrint
í framkvæmd ýmsu af því sem
Volvo-verksmiðjurnar kynntu í til-
raunabifreið sinni, „Volvo Concept
Car,“ í fyrra, en fáar tilraunabifreið-
ar hafa vakið eins mikla athygli,
umtal og blaðaskrif og þessi bifreið.
Þegar Volvo-verksmiðjurnar kynntu
þessa tilraunabifreið sína, — hug-
myndabanka framtíðarinnar, var
lögð á það áhersla af hálfu verk-
smiðjanna, að hún teldi að kapp-
hlaupið um orkusparnað mætti ekki
verða á kostnað nauðsynlegra fram-
fara í bifreiðaiðnaðinum heldur
þyrfti áfram að hugsa um öryggi og
þægindi ökumanna og farþega.
Framfarir þyrftu að aukast á báðum
sviðum, og það væri markmiðið með
umræddri tilraunabifreið.
1981 árgerðin af Volvo 240 og 260
er 9,3 sentimetrum styttri en fyrri ár-
gerðir, og munar þar mestu um
breytingu á stuðurum bifreiðanna.
Þá hefur breidd bifreiðanna verið
minnkuð um 6 sentimetra og hæðin
Svo sem sjá má á þessari mynd
er mœlaborðið í 240
gerðinni mikið breytt frá
því sem áður var og nú er þessi gerð
einnig fáanleg með „yfirgír“.
um 2 sentimetra. Við þetta hefur
bifreiðin lést um 13 kíló, og þótt það
virðist ef til vill ekki mikið hefur það
sitt að segja í sambandi við orku-
sparnað.
Mælaborðið í 1981 árgerðinni er
mjög frábrugðið því sem var í eldri
árgerðum. Nú eru þrír hringlaga
mælar fyrir framan ökumanninn, —
hraðamælir, klukka og sameiginleg-
ur bensín og hitamælir. í sumum
gerðum er snúningshraðantælir í stað
klukkunnar í mælaborðinu, og er þá
klukkan í borðinu hægra megin við
ökumanninn. Mælaborð bifreiðar-
innar er sérstaklega hannað með það
í huga að Volvo-eigendur geti skipt
um mæla ef þeim sýnist svo, en sem
Meðal nýjunga í 1981 árgerðinni má
nefna, að nú er unnt að koma á
„samgangi“ milli farangursgeymslunnar
og aftursœtanna, þannig að auðvelt
er að flytja langa hluti, eins og t.d. skíði
í bifreiðinni.
kunnugt er þá er smekkur manna og
tilfinning afskaplega mismunandi
fyrir slíkum mælum. Er auðvelt að
koma nýjum mælum fyrir, og kostar
slíkt ekkert rask, né heldur það að
mælarnir séu utanáliggjandi, ef svo
má að orði komast.
Aðrar stórar breytingar sem gerðar
hafa verið á útliti Volvo 240 og 260
gerðanna eru þær að ljósin eru nú
stærri en áður og beygja fyrir homin
bæði að aftan og framan. Gefur þetta
bifreiðinni skemmtilegri og „renni-
legri“ svip, auk þess sem notagildi
ljósanna eykst.