Frjáls verslun - 01.01.1983, Síða 35
,,Við getum fengið hana fyrir
utan Reykjavík. Okkur stendur það
til boða. Meira að segja í tveim
sveitarfélögum. Við erum nú
spenntust fyrir því að vera hérna í
Reykjavík."
— Hvernig er skiptingin á söl-
unni milli þessara fjögurra bíla-
tegunda?
,,Við höfum selt 1000 bíla á ári
síðustu 4 árin að meðtöldu síðasta
ári. Salan á Subaru hefur aukist á
kostnaö Datsun. Við vorum með
... var meira spenntur fyrir British
Leyland.
umboð fyrir Datsun í gegnum
Danmörku sem var að mörgu leyti
óþægilegt en hafði þó sína kosti.
Það var óþægilegt að því leyti að
við viljum ekki alltaf sömu bíla og
Danir þurfa. Þó að við séum
frændþjóðir þá er mismunandi
smekkur. T.d. Datsun Cherry,
hann selst ekki nema 2 dyra hjá
Dönum en stór hluti sölunnar hjá
okkurer4 dyra. Það erfurðu ólíkur
smekkur á bílum á milli þessara
þjóða. Þetta háði okkur og þar að
auki var þetta kostnaðarauki að fá
bíla í gegnum Danmörku. f sumar
sem leið þá breyttist þetta og við
kaupum nú okkar bíla beint frá
verksmiðju og höfum ekkert sam-
ráð lengur við Dani. Þetta gerði
það að verkum að við gátum feng-
ið lægra verð hjá verksmiðjunum
heldur en Danir voru með, ein-
göngu vegna þess að verksmiðj-
urnar verðleggja eftir efnahags-
ástandi og kaupgetu fólksins í
landinu og við gátum sannfært þá
um það að kaupgeta okkar yrði lé-
leg á þessu ári. Ég trúi því að
Datsun verði fljótlega á þessu ári
mesti sölubíllinn.
Undanfarið hefur skiptingin
verið þannig að u.þ.b. 40% af söl-
unni hefur verið Subaru, 30%
Datsun og 30% Trabant og Wart-
burg. En allt útlit er fyrir að salan á
Datsun muni stóraukast á árinu."
— Nú eiga bílaumboðin miklar
birgðir af óseldum bílum. Sér ekki
fram á hrun hjá einhverjum um-
boðum?
„Náttúrlega eiga mörg umboðin
í erfiðleikum núna og útlit er frekar
fyrir minni sölu en meiri. Ég myndi
spá helmingssölu í ár og hef
undirbúið innkaup með það fyrir
augum. Fyrr hafa þó verið erfið-
leikar og fyrirtækin hafa getað
bjargað sér, stundum með sam-
komulagi við verksmiðjur. Ég óska
þess að kollegar mínir komist allir í
gegnum þrengingarnar."
— Þú heldur þá ekki að bíla-
umboðum komi til með að fækka
og stækka og kaup Jöfurs á Vökli
og Egils Viihjálmssonar á Davíð
Sigurðssyni sé ekki upphafið að
nýrri þróun?
,,Ég held að það séu ýmsir
erfiðleikar við það. Það er t.d. erfitt
að fá uppbót á fjármagnsþörf í
bönkum. Ég efast um að bankar
mundu líta á það þannig að ef
fyrirtæki sameinuðust væri hægt
að auka fjármagnið til þeirra í
hlutfalli við samanlagða veltu
beggja fyrirtækjanna og kannski
hagkvæmari rekstur. Ég er ekki
viss um að sú þróun verði áfram að
fyrirtækin sameinist."
— Nú hefur þú kynnst Japön-
um vel á þínum viðskipaferli. Er
ekki dálítið sérstakt að eiga við-
skipti við Japani?
,,Það er satt það er dálítið sér-
kennilegt að versla við Japani.
Sérstaklega þótti mér það sér-
kennilegt að versla við þá hjá
Subaru. Subaru eða Fuji Indus-
tries er gamalt fyrirtæki og var,
þegar ég kynntist því 1976, rekið
samkvæmt gömlum japönskum
hefðum. Þegar ég kom til Japan
það ár til viðræðna við þá var
gaman að því að þeir svöruðu
aldrei ,,nei". Þegar ég spurði þá
um eitthvað sem þeir urðu að
svara neikvætt þá héldu þeir langa
tölu og fóru heilan hring. Ég átti að
skilja að þessa spurningu átti ég
ekki að spyrja aftur, hún væri út-
rædd. Það var aldrei sagt nei við
mig. Þetta hefur nú breyst hjá
Subaru sérstaklega fann ég það í
síðustu ferð að það er orðin mikil
amerikansering þar eins og hjá
Datsun. Þeir eru meira
amerikanaseraðir þó þeir viðhaldi
nú mörgum af sínum gömlu skikk-
um.
Þó er það svo að Japanir eru
Vífill, sonur Ingvars annast lögfræðistörf og ýmis sérverkefni, en öll börnin hafa
unnið við fyrirtækið.
35