Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 61

Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 61
Prósent-af-sölu-aðferðin Ekki er óalgengt að fyrirtæki noti sölu sína til viðmiðunar við ákvörðun á upphæð auglýs- ingafjár þannig að hún verði ákveðinn hundraðshluti af söl- unni. Mismunandi er hversu há prósentutala er notuð og ekki hægt að gefa neina ákveðna reglu. Ekki er þó óalgengt að viðmiðunin sé 2 — 4%. Bíla- verksmiöjur nota oft þessa aðferð, t.d. þannig að föst prósenta af verði hvers bíls fer í auglýsingar og hefur þessi að- ferð einmitt verið notuð af nokkrum bifreiðaumboðum hér. Menn sjá marga kosti við þessa aðferð. (fyrsta lagi þýöir hún að upphæð auglýsingafjár er breytileg ár frá ári eftir fjár- ráðum fyrirtækisins. Slíkt er þeim fjármálasinnuðu að skapi því þeir telja gjarnan að öll út- gjöld eigi að vera í sem föstustu hlutfalli við síbreytilega sölu. í öðru lagi fær þessi aðferð stjórnendur til að hugsa í hlut- föllum á milli auglýsingakostn- aðar, söluverðs og hagnaðar á hverja selda einingu. í þriðja lagi stuðlar þessi aöferð aó jafnvægi milli kepþinauta aö því leyti að þeir verja nokkurn veginn sama hundraðshluta af tekjum sínum til auglýsinga. En þrátt fyrir þessa kosti er fátt til að réttlæta ,,prósentu- af-sölu“ aðferðina. í henni felst sú hringhugsun að ætla aó sala sé orsök auglýsinga en ekki afleiðing. Hún verður til þess að fjármunum er ráðstaf- að eftir pyngjunni en ekki tækifærunum. Hún letur fyrir- tæki til að mæta samdrætti í eftirspurn meó ásækni. Aug- lýsingafjárveiting sem þarf aó fylgja árlegum sveiflum í sölu verður ekki nýtt til langtíma söluáætlana. Aðferöin segir okkur heldur ekkert um hve háa prósentu eigi að setja í auglýsingar. Þar getur eitt ver- IHJOTIÐ fitulítil og freistandi ið jafn gott og annað og líklega best að gera bara það sama og í fyrra eóa þá eins og keppi- nauturinn. Og hún stuðlar aö því að allar vörur og markaðir hafi sem líkast auglýsinga- kostnaðarhlutfall, en hamlár gegn því að mismunun sé milli markaðs og tegunda eftir áherslu og sölumarkmiðum. Framleitt úr islenskum úrvals kartöflum. KAUPFÉLAG SVALBARÐSEYRAR simi (96) 25800 Sama-og-keppi- nauturinn aðferðin Sum fyrirtæki ákvarða aug- lýsingafé sitt einvörðungu eftir því hvað keppinauturinn gerir. Þeir sem ákveða auglýsingafé spyrja sig þá ,,hvaða hlutfall af veltu nota menn í þessari grein til auglýsinga?“ Finni þeir það út nota þeir sama hlutfall. Hægt er aó benda á tvenn rök fyrir þessari aðferð. Annars vegar þá að auglýsingafé eins keppinautar ákvarðast af samanlagðri visku allra keppi- nautanna. í öðru lagi aó slík samstaða dregur úr hættu á auglýsingastríði. Bæöi eru þetta falsrök. Ekk- ert tryggir það að keppinautur- inn noti gáfulegri aðferðir til að ákvarða sitt auglýsingafé. Tvö fyrirtæki geta verið svo ólík í stjórnun, markaðsstöðu, mark- mióum og efnahag að fjár- munaráðstöfun, sem grund- vallast á viljanum til að við- halda jafnvægi milli keppinauta efli stöðugleika í auglýsinga- kostnaói. Að vita hve mikið keppinaut- urinn notar í auglýsingar er gagnlegt. En að vita er eitt og að fylgja því í blindni er annaó. Markmiðs-og-aðgerða aðferðin Með þessari aðferö er ráð- stöfunarfé til auglýsinga ákveðið meö því að: 1. skil- greina eins vel og kostur er markmiðið með auglýsingu. 2. Ákvarða þau verkefni, sem leysa þarf til að ná þessum markmiðum. 3. Áætla kostn- aðinn við að leysa þessi verk- efni. Sú kostnaðarupphæð er sú fjárhæð, sem lagt er til aó notuð verði í auglýsingar. Auglýsingamarkmið þarf að skilgreina eins nákvæmlega og kostur er til leiðbeiningar fyrir auglýsingagerðarfólk og til að tryggja markvisst val á fjölmiðli. ,,Að ná góðri markaðshlut- deild“ er mun veikari skilgrein- ing á markmiði en ,,að ná 35% markaðshlutdeild fyrir vöru X meðal 55 þúsund húsmæóra“. Þessi aðferð er vinsæl meðal margra auglýsenda og líkleg- ust til að gefa árangur. Hennar aðalgalli er þó sá að hún segir ekkert um hvernig velja beri sjálf markmiðin né hvort það sé kostnaðarins virði að ná þeim. 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.