Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1988, Síða 14

Frjáls verslun - 01.07.1988, Síða 14
HEYRT OG SEÐ SÖLUTÆKNI FERÐASKRIFSTOFA HEYRT Ein aöferö þeirra sem ekki geta selt vöru eöa þjónustu út á annaö en lágt verð er að fela kostnað á einn eöa annan hátt. Samkeppni um sölu á ferðum með dvöl í sumar- húsum í V-Þýskalandi hefur aukist á undanförn- um árum í jöfnu hlutfalli viö aukna eftirspurn. Svo virðist sem vaxandi hópur íslenskra fjölskyldna velji aö eyða sumarleyfinu saman í rúmgóðu sumarhúsi í nágrenni Lúxemborgar enda liggur beinast við að taka þar bílaleigubíl um leið og stigið er út úr flugvélinni. Þeir sem kjósa að kaupa hagstæðustu farmiðana ásamt bílaleigubíl beint frá Flugleiðum geta með einu símatelexi tryggt sér sumarhús t.d. hjá Dorint samsteypunni og fengið nákvæmar upplýsingar um leigu og annan kostnað sem því fylgir. Þeir sem keypt hafa ferðir með dvöl í sumar- húsi af ferðaskrifstofum hafa, a.m.k. sumir, lent í því að vera rukkaðir um greiðslu fyrir rafmagn og hita, t.d. 130 DM/viku, við brottför. Hefur þetta komið sér illa fyrir fólk sem taldi sig hafa greitt viðkomandi ferðaskrifstofu það sem upp var sett fyrir sumar- húsið. Þeir sem skipt hafa milli- liðalaust við Dorint árum saman kannast ekki við að hafa nokkru sinni verið rukkaöir um greiðslu fyrir rafmagn og hita sérstaklega, aðeins fast hreingerningargjald hefur þurft að greiða auk leig- unnar og er það undan- tekningarlaust tekið fram í staðfestingu frá Dorint. Þetta dæmi sýnir, eins og mörg önnur, að vissara er að ganga stíft eftir upplýsingum um hvað sé innifalið í girnilegum tilboðum. DÝR OG LÉLEG ÞJÓNUSTA Samskipti sænskra auglýsingastofa og viðskiptamanna þeirra virðast fara ört versnandi, segir í grein í Dagens Industri. Á fyrstu mánuðum ársins 1988 fjórfaldaðist fjöldi kvartana sem samtökum sænskra auglýsenda barst vegna hárra reikninga og illa unninna verkefna. Frægasta málið er sennilega dómsmál sem reis á milli auglýsingastofunnar Rydberg & Partners og verðbréfafyrirtækisins Pronator útaf reikningi hins fyrrnefnda fyrir hönnun og útgáfu ársskýrslu Pronators. Það síðarnefnda taldi reikninginn of háan sem næmi 300-400 þúsund skr. Framkvæmdastjóri samtaka auglýsenda, Svante Sköldberg, segir í viðtali í fagritinu Rubrik/ Marknadsföring: „Þau 65 fyrirtæki sem aðild eiga að samtökum okkar hafa haft áhyggjur af verulegri hækkun auglýsingakostn- aðar þar sem hlutur auglýsingafyrirtækjanna hefur vaxið meira en birt- ingarkostnaður“. Framkvæmdastjóri sam- taka sænskra auglýsinga- fyrirtækja, Anne Looström, er ekki tilbúin til að skrifa undir það að reikningar auglýsingastofanna séu of háir: „Útseld vinna viðurkenndrar auglýsinga- stofu er nú 300-900 skr á klukkustund. (2.160-6.480 ísl. kr/klst) og það telst ekki hátt miðað við það sem geristt.d. á sviði tölvuráðgjafar", segir hún. — Að í Bretlandi hafi nýlega komið í Ijós að kerfisfræðingar, sem skrifað hafa í MS-DOS stýrikerfinu og ætluðu að skipta yfir í OS2, hafi margir lent í stökustu vandræðum. Haft er eftir Jim Watt, formanni samtaka OS2 notenda, í Computer Weekly nýlega, að það taki MS-DOS forritara allt að 6 mánuði að læra forritun í OS2-. Að sum bresk fyrirtæki sem keypt hafa nýju AS400 tölvuna af IBM telji að erfiðara sé að flytja tölvuvinnsluna úr S/36 umhverfinu yfir á AS400 en IBM hafi látið í veðri vaka. Til dæmis hefur IBM ekki getað útvegað segulbandsstöð fyrir AS400 með 150 Mb rými eins og notuð er við S/38 (3422). MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR NETTAR, LITLAR OG LÉTTAR Lítil, einföld og því traust. Fyrirtak á skrifboröiö! Sú ódýrasta á markaönum. Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending og nákvæmni. Lágt verö og rekstarkostnaður. MINOLTA EP 50 5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka, hágæöaprentun og hagkvæmni i rekstri. Ekjaran ARMULA 22. SlMI (91) 8 30 22. 108 REYKJAVlK 14

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.