Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 19
HOPPANDI
BRJÁLAÐIR
Helstu bílumboöin, að
Bifreiðum og
landbúnaðarvélum h.f.
undanskildum, komu illa
útúr verðkönnun á
varahlutum sem bílablaðið
Bíllinn birti í september.
Lægst varahlutaverð
reyndist vera í Lada en í
öllum öðrum tilvikum voru
varahlutir um helmingi
ódýrari hjá Bílanausti en í
viðkomandi umboði.
Mestur munur reyndist
vera á verði varahluta í
Honda, meira en helmingi
lægra í Bílanausti en í
umboðinu. Hjá Heklu
kostaði t.d. eitt framljósker
í Audi 100 sama og tvö í
Bílanausti. Hjöruliður í
framdrifinn japanskan bíl
kostaði 19 þúsund krónur í
umboðinu en 5 þúsund
krónur hjá GS-varahlutum
og Bílanausti.
Hjá sumum
bílaumboðum er þessi
könnun talin vera illa
unnin, misvísandi og
beinlínis til þess gerð að
auglýsa Bílanaust og
Bifreiðar og
landbúnaðarvélar h.f.
STÚDENTí
ÍHLAUPA-
VINNU
Stúdentaráð Háskóla
íslands hefur hafið
starfsemi miðlunar fyrir
hlutastörf: Starfsmiðlun
stúdenta, segir í
fréttatilkynningu.
Tilgangurinn er að útvega
stúdentum hlutastörf eða
sjálfstæð verkefni með
náminu. Starfsmiðlun SHÍ
mun einnig aðstoða
nýútskrifaða frá HÍ að leita
sér atvinnu við sitt hæfi.
Munurinn á Avinnumiðlun
námsmanna og Starfs-
miðlun stúdenta er sá að
sú fyrrnefnda miðar að því
að útvega öllum
námsmönnum vinnu yfir
sumarmánuðina en sú
síðarnefnda að því að
útvega hlutastörf fyrir
stúdenta við HÍ yfir
vetrarmánuðina.
Starfsmiðlunin fer
þannig fram að tilboð frá
atvinnurekendum eru
skráð og hengd upp í
skólanum. Þar geta
stúdentar séð eftir hverju
verið er að leita og haft
beint og milliliðalaust
samband við viðkomandi
atvinnurekanda. Þjónusta
Starfsmiðlunar stúdenta er
báðum aðilum að
NÝSTÁRLEG
ÞJÓNUSTA
HJÁ
TÖLVUBÆ
[ febrúar á þessu ári var
stofnað fyrirtækið
Tölvubær. Það er til húsa
að Skipholti 50b. Tölvubær
býður uppá nýstárlega
þjónustu, annars vegar
þeim sem eiga eða nota
Macintosh en hafa ekki
haft bolmagn til að
fjárfesta í rándýrum búnaði
svo sem útgáfukerfi og
geislaprentara og hins
vegar þeim sem ekki eiga
tölvu en þurfa samt á
ritvinnslu að halda.
Hjá Tölvubæ getur
námsmaður, sem skrifað
hefur ritgerð á Macintosh
og kemur með hana á
disklingi, sest við sams
konar tölvu og prentað
ritgerðina með
geislaprentara með útlit
eins og kæmi hún úr
prentsmiðju. Hjá Tölvubæ
er einnig hægt að leigja
aðstöðu til
námskeiðahalds, þar eru 8
Macintosh tölvur til reiðu í
sérstökum kennslusal og
hægt að tengja þær
ýmsum jaðartækjum.
Tölvubær stendur einnig
fyrir stuttum námskeiðum
á eigin vegum sem ætluð
eru fyrir starfsmenn
fyrirtækja.
REYKHOLT
Útgáfuþj ónusta
málfarsráögjöf, ritstýring tímarita og
fréttabréfa, tölvuprentun,
prófarkalestur, öll aðstoð við eigin
útgáfu höfunda, fyrirtækja og
stofnana o.fl.
Bókaútgáfa
Bækur fyrir smekk allra.
Bækur fyrir venjulegt fólk.
REYKHOLT HF.
Bókaútgáfa — Útgáfuþjónusta
HÖFÐATUN 12
105 REYKJAVÍK
SÍMI: 62 12 18
J
19