Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 32
VIÐSKIPTI
draga til sín um helming allra
sjónvarpsáhorfenda.
Undirbúningur aö uppsetningu
auglýsingasjónvarps hófst áriö
1986 meö því aö samþykkt voru
um það lög á danska Joinginu með
naumum meirihluta. I þeim lögum
var gert ráö fyrir að 70% tekna
stöðvarinnar skyldu nást með
sölu auglýsinga en 30% meö
hækkun afnotagjalds um 154
danskar krónur á árinu 1989. Not-
endur sem greiða afnotagjald eru
um 1,6 milljón talsins. Dreifikerfi
TV 2 verður ekki fullbyggt fyrr en
aö ári liðnu en þangað til munu
um 70% landsmanna geta náö
sendingu stöðvarinnar.
Lögin takmarka auglýsingatím-
ann við hámarkið 10 mínútur á
dag á almennu rásinni og 5 mín-
útur á dag fyrir svæðisútsendingu
TV Syd sem hófst fyrir ári síðan.
En lögin fjalla um fleiri atriði.
Þannig er stöðinni gert að starfa í
tveimur aðskildum fyrirtækjum,
annað sér um dagskrárgerð en
hitt um auglýsingar. Tilgangurinn
er sá að girða fyrir hugsanlega
samtengingu dagskrárefnis og
auglýsinga. Til að undirstrika
frekar alvöru málsins er dagskrá-
in og efnisgerð í Óðinsvéum en
auglýsingafyrirtækið í Kaup-
mannahöfn.
Á fyrstu 12 mánuðunum sem
TV 2 starfar er reiknað með að
rekstrarkostnaðurinn verði um
550 milljón danskar krónur. Það
þýðir að auglýsingatekjurnar
þurfa að ná 385 milljónum dkr.
Auglýsingastjóri TV 2, Jens
Howitz, telur að þær tekjur muni
nást enda hafi allur auglýsinga-
tíminn til næstu áramóta selst
fyrirfram fyrir 70 milljónir dkr og
þegar sé búið að selja auglýs-
ingatímafyrir meira en 30 milljónir
dkr á árinu 1989.
í Finnlandi hefur auglýsinga-
sjónvarp aflað jafngildi 870 millj-
ón danskra króna á ársgrundvelli.
Samkvæmt útreikningum sam-
taka danskra atvinnurekenda
mun árlega varið um 9 milljörðum
danskra króna til auglýsinga í
fjölmiðlum. TV 2 reiknar með að
ná til sín um 5% af öllum auglýs-
ingum og ýmis rök hníga að því að
þau 5% verði hrein viðbót á mark-
aðinum. Jens Howitz telur að
reynslan í öðrum löndum hafi sýnt
að auglýsingar í sjónvarpi auki
frekar en minnki auglýsingar í
prentmiðlum þar sem fyirtæki
fylgi iðulega auglýsingum í sjón-
SJÓNVARP DREGUR MEST ÚR
LESTRIVIKURITA
varpi eftir með auglýsingum í
dagblöðum og á veggspjöldum,
það séu helst vikuritin sem tapi
viðskiptum með tilkomu sjón-
varpsauglýsinga, enda sé reynsl-
an sú að engir aðrir miðlar stand-
ist sjónvarpi snúning þegar
skemmtiefni sé annars vegar,
reynslan sýni að upplag vikurita
dragist jafnt og þétt saman með
auknu úrvali sjónvarpsefnis.
Verðlagning auglýsinga á TV 2
er í fyrstu háð þeirri staðreynd að
stöðin nær ekki til allra Dana en í
framtíðinni mun verðið verða
breytilegt eftir árstíma og eftir-
spurn. Samkvæmt upplýsingum
Jens Howitz mun kosta, að með-
altali, um 70 þúsund danskar
krónur að birta 30 sekúndna aug-
lýsingamynd í TV 2 á árinu 1989.
Stjórnmálamennirnir gera ráð
fyrir því með lögunum um TV 2 að
stöðin sendi út í um 1000 klst á
fyrsta starfsárinu. Það þýðir 2,5
útsendingartímar að jafnaði á
dag. í Ijós hefur komið að þetta er
Eldtraustir
tölvugagnaskápar
@ Rosengrens
Tölvugagnaskápar eru sérstaklega framleiddir til að vemda allar
gerðir tölvugagna, svo sem diskettur, segulböhd og seguldiska
Geymið viðkvæmustu og verðmætustu upplýsingar fyrirtækisins
í öruggum skáp.
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUN 10 HAFNARFIRÐI SÍMI 651000
32