Frjáls verslun - 01.07.1988, Side 35
RORD í IÐNAÐI?
fyrirtækja í stærri heildir, aukinni
samvinnu á tæknisviðinu og fleiru
í þeim dúr. Hann hyggst stuðla að
þessari þróun með mjög öflugri
upplýsingamiðlun um þær breyt-
ingar sem í vændum eru með
samruna Evrópu í einn markað
árið 1992. Hann vinnur einnig að
því að fá ýmsum lögum og reglum
breytt þannig að iðnaðurinn eigi
auðveldara með að keppa um
fjárfestingarfé á frjálsum mark-
aði, t.d. þannig að bankar og
tryggingafélög sjái sér hag í því
að ávaxta fé í meiri mæli í iðnaðin-
um og þá m.a. með kaupum á
hlutabréfum.
Það er hér sem CIM kemur inn í
dæmið sem einn þáttur í að yngja
upp danskan iðnað.
MARKMIÐ AÐGERÐA
Samkeppnisstöðu danskra
iðnfyrirtækja er ætlunin að styrkja
með eftirfarandi:
— Hraðvirkariaðlögunaðbreytt-
um markaðsaðstæðum.
— Meiri gæði.
— Vörur aðlagaðar kröfum
kaupenda.
— Styttri afgreiðslutími.
— Samkeppnisfært verð.
CIM (Computer Integrated
Manufacturing) snýst um sam-
hæfingu og þýðir að allar upplýs-
ingar sem snerta markaðsmál,
hönnun, framleiðslu og sölu séu
til reiðu í einu samhæfðu tölvu-
kerfi. Áhrif þessarar tækni á
stjórnun fyrirtækis má líkja við
það að markaðs-, hönnunar-,
þróunar-, framleiðslutækni- og
söludeild væru allar í einum og
sama salnum.
Mörg framleiðslufyrirtæki á
Vesturlöndum, sem standast
samkeppni við fyrirtæki í Asíu,
standa því sterkar að vígi sem
þau eiga auðveldara með að að-
laga framleiðslu sína að sérstök-
um óskum kaupenda. Af því leiðir
að meira veltur á árangursríkri
Henry Ford I er sagður höfundur færibandsins. Efri myndin er tekin árið 1914 í Ford
bílaverksmiðjunni í Highland Park í Delroit. Ný tækni og hagræðing við smíði og
samsetningu T-Ford gerði almúgafólki kleift að eignast bíl. Neðri myndin er tekin árið
1988 í bresku Ford verksmiðjunni í Dagenham. Tölvutæknin hefur tekið við stjórninni.
Yfirbygging bílanna er rafsoöin saman með sjálfvirkum vélum og engin maður sjáanleg-
ur (verksmiðjunni.
35