Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 43

Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 43
PRÓFUN FORRITA OG VILLULEIT EFTIR SIGURÐ ELÍflS HJALTASON VERKFRJEÐING M.S.C.E. í frétt í einu dagblaðanna nú í haust var sagt frá villu í forriti hjá norður-írsku hagstofunni. Villan var þess eðlis að hagvöxtur var rangt skilgreindur í tölvukerfinu. Niðurstaðan úr forritinu var að hagvöxtur síðastliðin ár hefði verið um 1% á ári, en var í raun 3.4-4.6%. Öll efnahagsumræða norður-írskra stjórnmálamanna á liðnum árum hefur því byggst á röngum forsendum, þar á meðal síðasta kosningabarátta. Þetta er dæmi um villu í forriti, sem ekki finnst við fyrstu villuleit, því forritið keyrði eðlilega og „villulaust" í mörg ár. í þessari grein er ætlunin að fjalla um prófanir á forritum og villuleit. Að sjálfsögðu verður efn- ið ekki krufið til hlítar í tímarits- grein, heldur verður minnst á nokkra þá þætti, sem skipta máli. Því miður gleymist mikilvægi próf- ana oft við gerð forrita, bæði þeirra sem eru sérsmíðuð og þeirra sem fara í fjöldafram- leiðslu. Prófanir eru einn af grunnþátt- um í allri framleiðslu, jafn mikil- vægur og hönnunin sjálf eða smíðin. íframleiðslu eröll nýsmíði reynd til þrautar áður en farið er að fjöldaframleiða hlutinn. Eng- inn verkfræðingur með sómatil- finningu myndi byggja mannvirki án þess að prófa einstaka þætti þess. Á sama hátt er bráðnauð- synlegt að prófa hugbúnað áður en hann er settur af stað hjá not- anda. Hér á landi, eins og annars staðar, er oft lítil áhersla lögð á prófanir. Þær eru eingöngu fram- kvæmdar af forritara, og gjarnan lítill hluti forritsins í einu. Öll kerfis- prófun lendir því á notandanum, með mismunandi alvarlegum af- leiðingum. í mörgum tilvikum hafa vinnubrögð af þessu tagi leitt til þess að mikil vinna kaupanda Siguröur Elías Hjaltason M.S.C.E. forritsins hefur verið unnin fyrir gýg. Einungis RB, SKÝRR og sum stærri hugbúnaðarfyrirtæki hafa ákveðna stefnu í prófun hugbún- aðar. Trúlega er þó enginn enn hér á landi, sem hefur prófun hug- búnaðar að atvinnu. Oft gleyma fyrirtæki að taka tillit til prófana við gerð tímaáætlana og/eða tilboða. Af þessari ástæðu eru kerfi sett af stað hjá notanda áður en þau hafa verið fullþrófuð, með alvar- legum afleiðingum. Þetta verður síðan til þess að notandinn verður andsnúinn kerfinu, og þá tekur mörg ár að byggja upp traust not- anda aftur. í hugbúnaðargerð eru allar vill- ur mannleg mistök, en miklar vonir eru bundnar við betri hönn- unaraðferðir, betur þjálfaða forrit- ara eða eitthvert forritunarum- hverfi sem fyrirbyggja á mannleg- ar villur. Þótt miklar framfarir verði á næstunni á þessum sviðum, er ekki hægt að búast við að sleppa megi algjörlega prófunum á hug- búnaði. PRÓFUN FORRITA: Prófun forrita má skipta í nokk- ur þrep. í fyrsta lagi er einföld af- lúsun forritsins. Forritarinn fram- kvæmir þessa aðgerð yfirleitt um leið og hann skrifar forritið. Hér er athugað hvort forritið keyrir, þ.e.a.s. hvort forritið skili ein- hverjum sennilegum niðurstöð- um fyrir venjuleg gögn. Næsta skref er að prófa hverja einingu forritsins nánar. Öll sam- eiginleg undirforrit þarf að prófa sérstaklega vel, og tryggja að þau skili „réttum" niðurstöðum í öllum tilvikum. Hér þarf að prófa hvort hver einstök eining forritsins skili réttum niðurstöðum við öll venju- 43

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.