Frjáls verslun - 01.07.1988, Side 51
TOLVUR
- HUGBÚNAÐUR
- TÆKNI
UMSJÓN: LEÓ M. JÓNSSON
TÆKNIFRÆÐINGUR.
MYNDRÆN
GAGNAVINNSLA Á WANG
Míkrógrafía nefnist sú tækni
sem gerir kleift að mynda skjöl og
varðveita á örfilmum sem síðan
má stækka nægilega til að þau
megi skoða, Ijósrita eða nota á
annan hátt. Með örfilmum má
minnka skalageymslurými um
hvorki meira né minna en 98%.
Það er of djúpt í árinni tekið að
segja að örfilman geti útrýmt
skjölum þar sem lög segja til um
að ákveðin skjöl verði að geyma.
Með örfilmum má hins vegar
draga verulega úr afritun. Optískir
diskar hafa svo skapað nýja
möguleika á því að nýta míkró-
grafíu með tölvum og auka þann-
ig til muna það hagræði sem ör-
filmurnar hafa skapað og er fyrst
og fremst fólgið í því rými sem
sparast, eftir sem áður er mikið
mas við að nálgast og skoða
skjölin.
Um þessar mundir er verið að
taka upp nýja aðferð í upplýsinga-
tækni í flestum stærstu fyrirtækj-
um Bandaríkjanna, í fjölda banka,
hjá tryggingafélugum og opinber-
um aðilum. Hér er um að ræða
„Image System“ (IS) sem nefnt
hefur verið myndvinnsla eða
samræmd myndvinnsla (IIS). Ef
til vill verður hægt með mynd-
vinnslu, það sem algjörlega mis-
tókst með tölvum; að draga úr
pappírsflóðinu sem aldrei hefur
verið meira en nú: Hugsanlega
getur þessi tækni komið í veg fyrir
að regnskógum við Amason og
víðar verði eytt í þágu pappírs-
framleiðslu.
Wang er komið langt á sviði
myndvinnslunnar og býður nú
þróað og fullreynt kerfi sem það
nefnir WIIS en það er skammstöf-
un á Wang Integrated Image
System. Þetta kerfi gerir kleift að
mynda, geyma og sækja á skjá
alls konar myndræn gögn svo
sem Ijósmyndir, handskrifuð bréf,
nótur o.fl. Með því að notaoptíska
diska til að geyma þessar myndir
með stafrænum kóða má spara
ótrúlega mikið geymslurými og
vinnu við skjalavistun. Með WIIS-
kerfinu er nánast búið að girða
fyrir ýmis mannleg mistök. Sem
dæmi má nefna að í myndvinnslu
eru hverfandi líkur á því að skjal
sé vistað á röngum stað og hverf-