Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 54
TÆKNI TÖLVUHÖNNUN í UNDRALANDI HVERNIG TÖLVUTÆKNIN AUÐVELDAR OG EYKUR MÖGULEIKA í AUGLÝSINGUM, SKREYTINGU OG SKILTAGERÐ. Það er ekki lengur framtíðarsýn að hönnuður sitji við tölvu í stað teikniborðs. Þeir iðnhönnuðir sem nota fullkomnustu grafísku tölvukerfin nútildags hafa sagt skilið við teikniborðið og jafnvel hent því. Þeir notast jafnvel ein- göngu við tölvubúnaðinn og hnit- ara sem fluttur er til á plötu til að hanna og teikna þau verk sem unnið er að. Ásgeir Ásgeirsson auglýsinga- teiknari rekur, ásamt öðrum, fyrir- tækið Undraland í Mosfellsbæ. Fyrir rúmu ári síðan keyptu þeir grafíska tölvusamstæðu ásamt hugbúnaði frá Signus í V-Þýska- landi. Um er að ræða tvær tölvur, aðra frá IBM en hina frá DEC, tvo skjái, prentara og tölvustýrðan filmuskera/teiknara (plotter) frá Aristo. Með þessum búnaði vinna Ásgeir og starfsmenn hans fjöl- breyttustu verkefni fyrir ótal aðila. í grófum dráttum vinnur tölvu- búnaðurinn þannig að á IBM tölv- una eru verkefni skráð og forunn- in, svo sem hönnun, innskrift, let- urgerð, teiknun og litun ásamt gerð ýmissa tilbrigða. DEC tölvan tekur síðan við boðum og stýrir tölvuteiknaranum sem skilar myndinni á pappír, plast, filmu, dúk eða annað efni eða sker hana út í límfilmu. Með þessum búnaði framleiðir Undraland m.a. filmur fyrir silkiprentun sem not- aðar eru til prentunar á stærri límmiðum. í þeim tilvikum er not- aður filmuhnífur í stað penna í sjálfvirka tölvuteiknaranum og er nákvæmninni best lýst með því að hægt er að skera línu allt niður í 2/100 hluta úr millimetra á breidd. (Hámarksfrávik eru +/- 1/100 mm). Ásgeir segir það skipta veru- legu máli fyrir gæði í prentun að skurður sé sem grennstur og skarpastur og með þessari tækni sé sá galli úr sögunni að útlínur stafa eða lína verði loðnar og óhreinar eftir því sem fyrirmyndin er meira stækkuð. Filmur sem unnar eru með þessari tækni eiga að geta dregið töluvert úr kostn- aði við silkiprent, m.a. með lækk- un kostnaðar við filmugerð þótt aðalatriðið sé að hún gerir kleift að prenta stóra límmiða með mun meiri gæðum en hingað til hefur tíðkast, að sögn Ásgeirs. ÓTRÚLEGIR MÖGULEIKAR Á LETRI Sem dæmi um þá miklu mögu- leika sem tölvutæknin býður uppá má nefna leturgallerí kerfis- ins. Ásgeir hefur íslenskað letur- fonta þannig að íslenskir stafir eru til reiðu í tugum mismunandi let- urgerða í óteljandi afbrigðum sem sífellt fjölgar. Eigi t.d. að vinna með ákveðna klysju (dæmi; heiti fyrirtækis) er hún fyrst fundin í prentaðri gagnaskrá, þegar tilvís- unarnúmer hefur verið slegið inn birtist efnisskrá viðkomandi klysju á skjánum. Eftir að ákveðin hefur verið stærð klysjunnar er gefin ákveðin skipun og klysjan birtist í lit á 14 tommu grafískum háleysniskjá. Með hnitaranum og skipunum frá hnappaborði er hægt að breyta stafagerð að vild, teygja upp, þjappa saman eða draga sundur. Hægt er að breyta hlutföllum t.d. að mynda klysjuna í sömu lengd en helmingi lægri eða öfugt. Á sama hátt er hægt að Teikniborðið hefur breyst í tölvuskjá og hnitara. Tölvan hefur tekið við hlutverki teikn- ingasafns, skissublokkar og límstafa auk þess sem hún er allt sem þarf til hreinteikning- ar. Ljósmynd: Kristján E. Einarsson. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.