Frjáls verslun - 01.07.1988, Qupperneq 56
Þannig birtist grunnteikningin (Mercedes Benz sendibíll) á skjánum. Meö hnitara er teiknað inná myndina. Letur eöa
teikningar má sækja í gagnabanka eöa biöminni, ákveöa stærö og hlutföll og setja inná grunnteikninguna. Eftir aö búiö
er aö hanna útlit bílsins sér tölvubúnaðurinn um aö skera merkingar út úr límdúk. Einn kostur viö þetta kerfi er sá aö
merkingar fara á bílinn án samskeyta og því minni hætta á aö dúkurinn losni af og skemmist. Ljósmynd: Kristján E.
Einarsson.
HAGRÆÐING OG
TÍMASPARNAÐUR
Ásgeir nefndi nokkur dæmi um
verkefni sem hann heföi unniö
meö aðstoð þessara tækja.
Undraland hefur tekiö að sér
skreytingu flugvéla, sviffluga,
svifdreka, flugvélamódela, sport-
og fiskibáta og meira aö segja
hafa byssur veriö skreyttar. Af
öðrum verkefnum má nefna
Ijósaskilti af öllum gerðum, úti- og
inniskilti, skilti á knattspyrnuvelli,
keilubrautir auk gluggamerkja og
skreytinga. Þá er ótalinn sá þáttur
sem Ásgeir telur aö geti orðið
verulegur á næstunni en þaö er
filmuskurður fyrir prentmynda-
gerð.
Ásgeir nefndi einnig að Undra-
land ynni ýmis verkefni fyrir aðra
auglýsingateiknara en með þess-
um tölvubúnaði væri unnt að
spara mönnum gífurlega mikla
nostursvinnu við hreinteikningu
margháttaðra verkefna. Nefndi
hann sem dæmi að hægt sé að
láta tölvuna forma stafi, setningar
eða stafalínur í hring, á sívalning, í
fjarvídd eða nánast eins og hug-
myndaflugið leyfir.
Fram að þessu hafa grafískir
möguleikar fullkominna tölvu-
kerfa einskorðast við það sem
hægt er að gera á litskjánum sjálf-
um. Það er hins vegar tæplega á
færi einstaklinga að kaupa þann
flókna og dýra búnað sem þarf til
að koma slíkri hönnun af skjánum
og yfir í áþreifanlega mynd t.d. á
litskyggnur, pappír eða plast-
filmu. Þennan þröskuld hefur
Undraland yfirstigið, annars veg-
ar með fullkomnum tölvuteiknara
(plotter) fyrir stórt snið sem jafn-
framt sker út filmu en hins vegar
með því að nota límfilmu og geta
notað hvaða lit sem er á henni.
Þessi fullkomni tækjabúnaður
ásamt þeirri efnistækni sem nú er
til staðar þýðir einfaldlega að bylt-
ing hefur átt sér stað í grafískri
iðnhönnun hérlendis' L.M.J.
56