Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 59

Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 59
 Með honum er músargangurinn aðlagaður að þeim kerfum sem unnið er með, t.d. með hjálp draglista, þ.e. valmynda sem birt- ast á skjánum. Með einni skipun er síðan skipt á milli mismunandi stýringa. Stýribúnaðurinn ásamt hjálparhugbúnaði er á tveimur disklingum. Á öðrum þeirra er ennfremur uppsetningarforrit sem gerir kleift að setja músar- stýringuna upp t.d. á harðdisk með einni skipun: „Install". Til að nota Logitech-músina þarf viðkomandi hugbúnaður að vera gerður fyrir s.k. Microsoft músargang (MS driver) og stýri- kerfið verður að vera MS-DOS 2.0 eða síðari útgáfa (hærri tala). Auk þess sem tölvan þarf að hafa a.m.k. 256 kb vinnsluminni og a.m.k. CGA-grafík, tvö disklinga- drif eða eitt og harðdisk. Þrjár mismunandi gerðir eru boðnar: Seríal-músin sem tengd er í seríalport tölvunnar (sam- skiptakort verður að vera í tölv- unni, Móðurborðs-músin (Bus Mouse) sem tengd er tölvunni með ístungukorti og teppir þannig ekki seríalportið og svo sérstök gerð fyrir IBM PS/2. Það kann að vefjast fyrir manni að finna út hvort Logitech-músin vinni með ákveðnum hugbúnaði. í handbókum kerfa er að finna lista yfirþær mýs sem kerfið gerir gildar. Á sumum þeirra lista er ekki að finna Logitech Seríal- músina. Það þarf ekki að þýða að hún sé ekki gild, séu t.d. einhver eftirtalinna enskra vöruheita á listanum er hún fullgild: PC Mou- se frá The Mouse System Corp., The Torrington Manager Mouse, Visi-On Mouse. Auk þessara gild- ir nýja Logitech-músin í kerfum sem tiltaka eldri gerðina, Logit- ech C7-músina. Músin er tengd seríalportinu í AT-vélum beint með 9 pinna RS232 tenginu og PC/XT-vélum með 9/25 pinna millistykki sem fylgir. FARTÖLVA TENGD SJÓNVARPSSKJÁ Með nýju og fyrirferðarlitlu tæki er nú unnt að tengja fartölvuna Amstrad PPC við litsjónvarp og nota það sem litskjá með tölv- unni. Tækið sem nefnist PC-TV Adaptor er framleitt af Vine Micros í Bretlandi og kostar innan við 6 þúsund krónur hjá Tölvu- landi (áður Bókabúð Braga). Inni- falið í verði og með tækinu fylgir hugbúnaður á disklingi auk þeirra snúra og tengla sem nauðsynleg- ir eru. Auk forritsins sem fylgir þessu tæki þarf forrit sem er á stýrikerfisdisknum sem fylgirtölv- unni. Það kann að vera svolítið snúið að fínstilla sjónvarpstækið eftir tengingu, fer þó líklega nokkuð eftir tækjum, en eftir að það hefur gverið gert einu sinni er það leikur einn uppfrá því. I meðfylgjandi forriti er stýring sem gerir kleift að miðja myndina á skjánum, bæði lárétt og lóðrétt og er það gert með skipunum sem slegnar eru inn á tölvunni. Sé notuð rás í sjón- varpinu fyrir tölvuna sem ekki er notuð fyrir annað þarf ekki að endurstilla myndina. í forritinu er einnig að finna skipun sem skiptir á milli 50 og 60 megariða. Sérstakt „videóport" á tölvunni auk 9 pinna skjáportsins ertengt PC-TV-tækinu með með- fylgjandi snúrum og tækið síð- anm tengt sjónvarpi og straumbr- eyti. Með þessum búnaði er auð- velt að taka það sem unnið er með tölvunni upp á myndband. Aðalkosturinn við þetta tæki er hins vegar sá að það gefur mögu- leika á að nýta liti til fulls í mörgum vönduðum hugbúnaðarkerfum með Amstrad fartölvunni. 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.