Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1988, Qupperneq 61

Frjáls verslun - 01.07.1988, Qupperneq 61
 senda á milli tölvanna þarf PC tölvan að vera með seríalkort með Com 1 porti (ekki sama og seríal prentaraport). Samskiptin fara síðan fram með ASCI-kóða (DOS-skjal). Önnur spurning sem vaknar varðar hámarksstærð skjala þegar haft er í huga að vinnslu- minnið er aðeins 32 kb og hluti þess upptekinn fyrir forrit. Því er til að svara að Z88 er búin enn einni snilldarlegri lausn hvað þetta varðar. Um tvo möguleika er að ræða, annars vegar er hægt að flytja skjal út á seríalportið og geyma í biðminni þess á meðan viðbót eða annað skjal er skrifað en hins vegar er hægt að hafa aukakubba (ROM) og nota á sama hátt og disklingar eru not- aðir í PC tölvum. Að lokum má nefna tvo kosti sem prýða Z88 umfram margar ódýrar dvergtölvur. Miðverkið í Z88 er byggt á orkuvægu afbrigði örgjörvans Z80 og minnisrása (CMOS). Hitt atriðið er sérstak- lega hannaður mænustrengur og vinnsluferli í miðverki sem gerir það að verkum að aðgerðahraði þessarar tölvu er miklu meiri en tiftíðni gjörvans, 3 megarið, gefur vísbendingu um. Bæði er hún leiftursnögg að vinna flóknustu verkefni og þessi hraði er m.a. lykillinn að þeim eiginleika Z88 að hægt er að vinna með sömu gögn jöfnum höndum og nánast sam- tímis í ritvinnslu og töflureikni. Annað sniðugt atriði er að hægt er að hætta í miðju verkefni hve- nær sem er án þess að vista það sérstaklega í minni. Það nægir að styðja á báða „shift“-hnappana. Þannig býðurtölvan, jafnvel mán- uðum saman, og sé aftur stutt á sömu hnappana er skjalið aftur á skjánum þar sem frá var horfið. Áður en skilist er við Z88 skal telja upp þau forrit sem fylgja tölv- unni. Fyrsteraðtekjaritvinnsluna sem nefnist PipeDream en hún inniheldur allar helstu ritvinnslu- aðgerðir sem þörf er fyrir. Þá er töflureiknir, dagbók, dagatal, klukka, vekjari, reiknivél, skrá- stjóri, samskiptakerfið l/E ásamt BBC Basic, allt á meðfylgjandi ROM-kubbi. í samabandi við aðrar viðbætur má nefna að 128 kb EPROM- kubbar kosta um 5 þúsund krónur og 32 kb um 2 þúsund. Þá er ekk- ert því til fyrirstöðu að stækka vinnsluminnið í Z88 í og yfir megabæti. Það má gera með 512 kb stækkunarkubbum sem kosta um 20 þúsund krónur. ATHYGUSVE PRENTARI í síðasta tölublaði Frjálsrar verslunar sagði frá nýju tæki sem Míkró í Reykjavík hefur á boðstól- um og nefnist „The Logical Conn- ection“. Tækið leysir á hagkvæm- ari hátt það vandamál þegar t.d. þarf að tengja fleiri en einn prent- ara við sömu tölvu eða margar tölvur við sama jaðartækið (bls. 56 „Fjöltengivandinn leystur"). En Míkró h.f. lumar á ýmsu fleiru merkilegu. Meðal þess er ein af nýjustu gerðum Oki tölvu- prentara, Microline 390/391. Munurinn á þessum tveimur er sá að 391 er með breiðvals en að öðru leyti eru prentararnir eins. Prenthausinn er 24 nála og er það ein af ástæðunum fyrir því hve prentarinn er lágvær eða 52 dd(A) í sérstakri stillingu (annars 55 db(A)) og einnig ástæðan fyrir því hve leturgæðin geta verið mikil. Það sem skiptir mestu máli er að afköst þessa prentara geta verið frá 90 stöfum á sekúndu í vönduðu ritvélarletri og uppí 270 stafi á sekúndu í gagnaprentun með góðu letri. Prentarinn getur skilað 3 afritum auk frumritsins og í grafík skilar hann myndum með leysni sem er 360x360 doppur/ tommu. Mismunandi leturfontar að eig- in vali eru á sérstökum dvergdisk- um sem stungið er í prentarann að framanverðu. Með tímanum mun vera stefnt að því að hægt verði að velja úr mun meira úrvali íslenskaðra leturfonta. Nú eru í boði leturfontarnir Gothic og Prestige og hægt að prenta feit- letur, skáletur, letur með misjöfnu 61
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.