Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 62
TÆKNI
stafabili, tvö- og þrefalda stafa-
hæð, undirstrikað, gegnumstrik-
að, yfir- og undirskrift o.s.frv.
Pappírsmeðhöndlun í þessum
prentara skapar ýmsa möguleika
sem geta komið sér vel sums
staðar. Samfellu má þræða á 3
vegu, upp í gegnum botn prentar-
ans, aftan frá eða ofan frá. Pappír
má færa í báðar áttir og prentar-
inn er búinn sérstökum haldara
sem gerir kleift að losa samfell-
una af valsinum, halda henni í
prentaranum og þræða hana
sjálfvirkt inn á valsinn aftur í þeim
tilfellum þegar skjóta þarf stakri
örk inn á milli. Til nánari útskýr-
ingar getum við tekið dæmi: Sé
verið að prenta á límmiða á sam-
fellu er auðvelt að gera hlé á þeirri
prentun til að prenta út bréf eða
reikning. Þá er stutt á hnapp,
samfellan bakkar út af valsinum,
örk eða reikningi er stungið í
prentarann og prentað, örkin tek-
in úr og stutt aftur á hnappinn og
samfellan þræðist sjálfkrafa á
nýjan leik.
Ýmsan aukabúnað má fá með
Microline 390/391 svo sem sjálf-
virkan íleggjara fyrir arkir, papp-
írsdraga o.fl. Microline 390 með
hliðtengi (Centronics) mun kosta
frá 65 þúsund krónum og er til
sölu hjá öllum helstu tölvuselj-
endum.
SKEMMDARVERK 0G
„TÖLVUVEIRUR"
Fyrir nokkrum árum síðan var
algengt að talað væri um að tölva,
í fyrirtæki eða stofnun, hefði gert
þessa eða hina vitleysuna. Brögð
voru að því, ef ekki algengt, að
frásögnin væri orðuð á þann veg
að ætla mætti að tölvan hefði tek-
ið vitleysuna upp hjá sjálfri sér. Á
síðastliðnum áratug, sérstaklega
á fyrri hluta hans, þótti henta vel
að hafa tölvur til blóra, þeim var
kennt um margt sem aflaga fór
vegna mannlegra mistaka við for-
ritun, kerfissetningu og/eðatölvu-
vinnslu. Þetta ásamt takmarkaðri
tölvufræðslu í framhaldskólum
hefur átt drjúgan þátt í að skapa
almenna tölvufælni hérlendis á
þessum tíma eins og víða annar-
staðar.
Nú hefur líklegast orðið breyt-
ing á því fleiri en einn og fleiri en
tveir segjast hafa tekið eftir því að
fólk er hætt að kenna tölvum um
alls konar mistök og klúður,
a.m.k. sé hætt að tala um tölvuna
í 3. persónu sem geranda með
sjálfstæða hugsun. Sé þetta rétt
eru íslendingar komnir framúr
ýmsum Evrópuþjóðum í jákvæð-
ari afstöðu til tölvutækninnar.
Samt sem áður virðist enn grunnt
á hégiljum í sambandi við tölvur
og er það nýjasta s.k. tölvuveira
en nafngiftin er sérstaklega til
þess fallin að gefa í skyn að um
einhvers konar líffræðilegt fyrir-
brigði sé að ræða.
Staðreyndin er hins vegar sú
að tölvuveira er ákveðið tæki sem
notað er til nútímaskemmdar-
verka - eiginleikar og hraðvirkni
rafeindatækninnar er m.a. notað
til þess að eyðileggja verðmæti í
stað þess að nota dínamít. Og af
því minnst er á dínamít er ekki úr
vegi að geta þess að eitt fyrsta
skemmdarverk í heiminum sem
beint var gegn rafreikni mun hafa
átt sér stað í Noregi árið 1944
þegar menn úr andspyrnuhreyf-
ingunni sprengdu í loft upp s.k.
Watson-rafreikni í Osló. Sú vél
var frumstæður gataspjaldalesari
sem Þjóðverjar notuðu í sam-
bandi við útskrift á herkvaðning-
um. Markmiðið var að kalla til s.k.
vinnuþjónustu 3 árganga norskra
unglinga - og væntanlega til að
senda hluta þeirra til austurvíg-
stöðvanna. Watson tölvubúnað-
urinn þýski var eyðilagður með
dínamíti.
Á sama hátt og veira ræðst
gegn sýktri frumu með því að yfir-
taka stjórn hennar og láta frum-
una tormíma sjálfri sér getur
ákveðið tölvuforrit látið hugbúnað
eyðileggja sig sjálfan. Slíkt forrit,
sem gert er af kunnáttu, hefur
verið nefnt á ensku,, Logic bomb“
sem þýða mætti sem rökræn
sprengja. Það er þannig forrit
sem nú er farið að kalla tölvuveiru
en ætti ef til vill fremur að nefna
gagnaspilli. Forritið getur „blekkt“
tölvu til þess að eyða ákveðnum
skrám, jafnvel öllum skrám sem
lúta stjórn miðverksins. Það getur
t.d. gefið skipun um að forsníða
harða diska, þótt sú aðferð sé
ekki sérlega eftirsóknarverð
vegna þess hve hún getur verið
seinvirk. Forritið gæti t.d. ruglað
skrám þannig að þær verði næst-
um ónothæfar og síðan eytt þeim
ef tími vinnst til, aðferðirnar eru
nánast óteljandi.
Margar aðferðir eru við að
koma rökrænum sprengjum fyrir í
tölvukerfum. Ein er sú að koma
sprengjunni fyrir og fela í hugbún-
aði sem boðinn er hverjum sem
hafa vill endurgjaldslaust (Public
Domain) en með því móti getur
veiran eða gagnaspillirinn breiðst
ört út.
Rökrænar sprengjur getur
verið mjög erfitt að finna. Forritið
Framhald á síöu 64
62