Frjáls verslun - 01.07.1988, Qupperneq 66
TÆKNI
HUGBÚNAÐUR..
Framhald af síðu 64
velt með að læra notkun þess. Sú
lausn er samt sem áður óraun-
hæf af þeirri einföldu ástæðu að
vandamálið snýst ekki um getu til
að læra heldur viljaleysi - viðjar
vanans. Eins og svo oft áður er
lausnin of einföld til þess að
margir komi auga á hana. Hún er
fólgin í því að hanna ritvinnsluk-
erfi sem er jafnoki eða betrungur
hvað varðar getu, eigileika og
vinnsluaðgerðir í samanburði við
þau vinsælu (og dýru) kerfi sem
ætlunin er að keppa við og tefla
síðan saman vinnslustýringu og
mismunandi notendaskilum (á
ensku, user interface) þeirra
kerfa sem fólk er vant að nota.
Með öðrum orðum: Sprint ritvinn-
slan frá Borland getur lotið skip-
anakerfi WordPerfect, MS Word,
WordStar eða SideKick eftir því
hverju þessara kerfa notandinn
ervanur. Notandinn velureinfald-
lega þau notendaskil sem hann
er sáttur við og notar síðan Sprint
ritvinnsluna með þeim skipunum
sem hann er vanastur.
Eflaust má færa einhver rök
fyrir því að með þessari aðferð sé
verið að stæla eða líkja eftir öðr-
um kerfum að einhverju leyti.
Hætt er við að það yrði æði lang-
sótt mál og því líklega hverfandi
hætta á að notendur geti orðið
fyrir óþægindum af þeim sökum.
En snúum okkur að Sprint: Við
fyrstu sýn inniheldur kerfið flesta
þá eiginleika sem prýða tvö- og
þrefalt dýrari kerfi. Það sem ef til
vill er fyrst spurt um snertir prent-
stjóra sem fylgja kerfinu, hvort
þeir ráði við íslenska stafi og hvort
þeir séu fyrir geislaprentara. í
þeirri útgáfu af Sprint sem nú er
verið að selja eru 350 mismun-
andi prentarar skilgreindir. Eins
og margir þekkja fylgja margir
þeirra sama staðli þannig að ef til
vill er aðeins verið að tala um 50-
100 raunverulega prentstjóra. Á
meðal þeirra er að finna algeng-
ustu gerðir geislaprentara auk
þess sem kerfið lýtur PostScript
síðusniðsskipunum og grafík.
Hvað varðar íslensku stafina, eftir
því sem FV kemst næst, er í kerf-
inu möguleiki á eigin forritun
prentarastýringar, á svipaðan
hátt og hægt er að gera í Word-
Perfect. Þannig hafa íslensku
stafirnir verið settir inn fyrir
ákveðnar tegundir prentara,
bæði geisla- og nálaprentara, eft-
ir því sem þörf hefur krafist, að
sögn Sigurðar Jónssonar hjá
Tölvudeild Hans Petersen h.f.
sem selur Borland hugbúnað.
Væntanlegum kaupendum er þó
bent á að kynna sér þessa hlið
málsins gaumgæfilega áður en
kaup eru ákveðin.
Einn þeirra kosta sem þetta
kerfi hefur umfram flest önnur er
mjög hugvitsamlega útfærð ör-
yggisafritun. í WordPerfect þarf
að skilgreina sérstaklega þann
hátt sem hafa skal á öryggisafrit-
Canon PC-7
ZOOM 70% ~ 122%
Stækkar og minnkar frummynd
Ljósritar 99 ljósrit í einu.
Fastur vagn. Hljóðlaus ljósritunarvél.
Ljósritar í fimm litum.
Sjálfvirk lýsing og dekking.
VIÐHALDSFRÍ LJÓSRITUNARVÉL
Canou
«—
VERÐ AÐEINS KR.: 77.900 stgr.
Þetta afmælisverð verður aðeins
til áramóta.
Canon
m w
oo
AMfllVCRSARY
>l<rifvélin hf
Canon
Suðurlandsbraul 12
Simi 685277
56
AMMIVERSARY
66