Frjáls verslun - 01.07.1988, Síða 67
un, t.d. hve langt eigi aö líða á milli
afrita, hvar eigi að geyma örygg-
isafrit og hvernig. Þegar unnið er í
WordPerfect verður maður alltaf
var við þegar kerfið tekur öryggis-
afrit, smá töf skapast í hvert skipti.
í Sprint er þetta mál leyst þann-
ig að öryggisafritun er alsjálfvirk
og virkar í hvert skipti sem 3 sek-
úndur líða á milli þess sem slegið
er á hnapp og afritunin veldur
engri röskun í ritvinnslunni.
Samkvæmt mælingum og upp-
lýsingum framleiðanda er hraði í
algengustu aðgerðum meiri í
Sprint en í öðrum kerfum sem það
keppir við. Þá getur Sprint, eins
og nýrri útgáfa af WordPerfect,
haft margar skrár í vinnslu sam-
tímis, t.d. má skipta skjánum í 6
sjálfstæða vinnsluglugga. í Sprint
er leiðréttingarforrit og samheita-
orðasafn (enskt) með 220 þús-
und orðum, kerfið getur unnið
með textadálka, samhliða á skjá
eða í samfellu, það getur raðað
skrám eftir stafrófi eða tölum,
hægt er að teikna með því og það
getur skipt sjálfvirkt orðum (ekki
Ijóst hvort það skiptir íslenskum
oðrum rétt). Þetta ritvinnslukerfi
býður uppá neðanmál, sjálfvirka
prentun hausa, sjálfvirkt blað-
síðutal, innifelur orðaleit, tilvís-
anamerkingu, getur búið sjálft til
efnisyfirlit, getur unnið með sér-
hannaðar síður o.fl. o.fl. Sprint
vinnur á öllum 8088 og uppí
80386 IBM samhæfðum PC tölv-
um og þarf 384 kb vinnsluminni.
OS/2 útgáfa mun vera væntan-
leg.
Eins og er fylgja notendaskilin,
þ.e. WordPerfect, MS Word,
WordStar, SideKick auk þriggja
annarra skelja með í verðinu (kr.
9.460-.) sem er auglýst kynning-
arverð. í framtíðinni mun þurfa að
kaupa þessar skeljar og greiða
fyrir þær sérstaklega.
Einn augljósra kosta við þetta
ritvinnslukerfi er sá möguleiki fyrir
fyrirtæki að endurnýja ritvinnslu-
kerfi með hraðvirkara og ódýrara
kerfi án þess að þurfa að endur-
þjálfa starfsmenn eða senda þá á
sérstakt námskeið. Hafi fyrirtæk-
ið t.d. notað ritvinnslukerfið
WordStar og skiptir yfir í Sprint er
WordStar skelin einfaldlega valin
og ritvinnslan heldur áfram eins
og ekkert hafi í skorist að öðru
leyti en því að afköstin í vissum
tegundum verkefna ættu að geta
aukist verulega. Rétt er þó að
benda á að þeir sem skila skjölum
til prentunar á disklingum í
prentsmiðjum geta ekki gengið
að því sem gefnu að setningar-
deildir geti tekið við texta sem
skrifaður er í Sprint, a.m.k. ekki
enn sem komið er. Það er vissara
að spyrja fyrst.
Sprint er áhugavert ritvinnslu-
kerfi með ótrúlega fjölbreytta eig-
inleika og vinnslusvið miðað við
verð. Ýmsar flóknar aðgerðir,
sem taka við þar sem segja má
að ritvinnslu sleppi, eru einfaldar í
meðferð og þægilegar. Þegar
kemur að því að nota Sprint til
einföldustu verkefna svo sem að
skrifa stuttatilkynningu, greineða
sendibréf er kerfið alls ekki jafn
lipurt og önnur á svipuðu eða
lægra verði. Þeir sem þurfa oft að
skrifa stutt bréf og utan á umslög
ættu t.d. að prófa Sprint vel í slík-
um verkefnum áður en kaupin eru
gerð.
PageMaker og IBM
Skrifborðsútgáfa er núna hagkvæinasti
kosturinn til kynningar- og útgáfustarf-
seini. Allt sem til þarf er PageMaker uinbrotsfor-
ritið, Windows, IBM Personal Pageprinter og
IBM AT, IBM XT286 eða IBM PS/2. Með IBM verður setning á bókum,
fréttablöðum, kynningarritum, dagblöðum og auglýsinguin leikur einn.
IBM skilur þig ekki eftir. Allar skrár, sem
þú átt og voru unnar með gömlu ritvinnsl-
unni, er hægt að lesa beint inn og setja upp
á glæsilegan hátt nieð PageMaker. Og
prentun á IBM Personal Pageprinter
geislaprentarann fullkomnar verkið.
mognus
Bolholti 6, s. 689420 JtÍ
__________Þc8sl auglýsing er búin til mcð PageMaker og prcntuð á IBM Personal Pageprinter
67