Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 16

Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 16
FORSIÐUGREIN áætlanir um allt, sem varðar hlutverk bankans. Að annast önnur verkefni, sem samrýmanleg eru tilgangi bankans sem seðla- banka." Hér er víða drepið penna og greinilegt að þeir sem sömdu lögin og endurskoðuðu síðar vilja veg Seðla- bankans sem mestan og gera miklar kröfur til þeirra sem þar starfa. SÍVAXANDISTARFSEMI Bjöm Tryggvason aðstoðarbankastjóri hefur starfað við bankann frá því hann var deild í Landsbankanum og er því manna kunnugastur um starfsemina sem þar fer fram og þær breytingar sem orðið hafa í tímans rás. Hann sagði í samtali við Frjálsa verslun að í gegnum árin hafi ríkisstjórn og Alþingi stöðugt bætt verkefnum á starfs- menn bankans og því hafi hann smám sam- an vaxið upp í þá stærð sem hann er nú í. En lítum nú aðeins á það helsta sem fram fer í húsinu við Amarhól. Hvað innlend viðskipti varðar má nefna útgáfu á seðlum og mynt, en Seðiabankinn tók við því hlutverki af ríkissjóði árið 1968 og dreifir bankinn nú seðlum til 23 staða utan Reykjavíkur í samvinnu við banka og sparisjóði. Er sérstök deild í bankanum sem annast útgáfuna og einnig innköllun ónýtra seðla en nokkrir starfsmenn vinna við þann þátt. Meðal verkefna bankans em öll bankaviðskipti ríkissjóðs og hafa öll laun úr ríkis- sjóði verið greidd með ávísunum á reikninga bankans eða inn á reikninga starfsmanna í öðmm bönkum frá árinu 1960. Margar ríkisstofn- anir sem fá framlög úr ríkissjóði, eins og t.d. Tryggingastofnun ríkisins, em í við- skiptum við bankann svo og ýmsir sjóðir. Að flestra mati er meginhlutverk Seðla- bankans fólgið í því að vera banki bank- anna og hefur hann margvísleg afskipti af peningamálum innlánsstofnana. Flest em þau afskipti studd sérstökum lögum sem sett hafa verið þar um og má nefna reglur um lágmark lauss fjár sem þeim ber að ráða yfir svo og skyldur um að binda hluta innlána sinna á reikningi við bankann. Þá má geta um heimild Seðlabankans til að binda vaxtaákvarðanir banka og sparisjóða til þess að tryggja að raunvextir útlána séu ekki hærri en þeir em að jafnaði í okkar helstu viðskiptalöndum. Með lögunum frá 1986 vom settar ítar- legri reglur um starfsemi bankaeftirlits Seðlabankans, það gert mun sjálfstæðara en áður var og má nefna að forstöðumaður þess er nú skipaður sérstaklega af við- skiptaráðherra, 6 ár í senn. Bankaeftirliti er gert að hafa nákvæmt eftirlit með öllum innlánsstofnunum, verðbréfamiðlumm og fjárfestingarfélögum. Viðskiptareikningar innlánsstofnana, reikningar ríkissjóðs og ríkisstofnana auk erlendra reikninga em færðir í aðalbók- hald Seðlabankans og hjá Reiknistofu bankanna, sem er til húsa undir samaþaki. Seðlabankinn veitir innlánsstofnunum lán í ýmsu formi t.d. víxillán, lán gegn verð- bréfum, reikningslán og kvótalán vegna afurðalána. Erlendu viðskiptin em síst umfangs- minni því Seðlabankinn annast gjaldeyris- varasjóð landsins, varðveislu hans og ávöxtun í erlendum skuldabréfum eða innistæðureikningum hjá viðskiptabönk- um bankans víða um heim. Er gjaldeyris- varasjóðurinn fyrst og fremst ávaxtaður í bandarískum dollurum, þýskum mörkum og japönskum jenum. Auk þess sér bank- inn ríkissjóði og innlánsstofnunum í land- inu fyrir erlendri mynt og kaupir af þeim þann gjaldeyri sem þessir aðilar þurfa að losna við. Seðlabankinn sér um skráningu á gengi erlendra mynta gagnvart íslenskri krónu. Eins og allir vita hafa íslendingar verið afar drjúgir við að taka erlend lán á liðnum Hvort sem mönnum líkar betur eða ver er Ijóst að verkefni Seðlabankans í dag eru gífurlega umfangsmikil. AUKIN BÍLAÞJÓNUSTA ESSO . SJÁLFVIRKAR BIIAÞVOTTASTOÐVAR í REYKJAVÍK, HAFNARFIRÐI, KEFLAVÍK, AKRANESI OG AKUREYRI Við bjóðum nú fullkominn bílaþvott og bón í sjálfvirku bílaþvottastöðvum á fimm stöðum á landinu: Skógarseli, Breiðholti Lækjargötu, Hafnarfirði Aðalstöðinni, Keflavík Þjóðbraut 9, Akranesi Veganesti, Akureyri Tjöruþvottur og bón kr. 475,-. Olíufélagið hf

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.