Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 24

Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 24
ALMENNINGSTENGSL fylgja tölvuvæðingu söl- ukerfisins eftir með stór- tækum breytingum á markaðssetningu. Nýr getraunaseðill, nýtt „ló- gó“ og nýjar aðferðir við markaðssetningu litu dagsins ljós. ímynd getraunanna var keyrð upp með stórum auglýsingum, fyndn- um og fjörugum, en í leiðinni héldu menn sér fast við stóra sölupunkta, þ.e. einfaldur leikur, allir gátu verið með, „mamma gamla“ var vel með á nótunum og sterk myndræn útfærsla var í leiðinni einföld áminning um t.d. tvöfaldan eða þrefaldan pott. Þarna small saman öflugt ímyndar- átak og grjóthörð sölumennska á vör- unni sjálfri. I þessu tilfelli lét árangur- inn ekki á sér standa enda varan góð sem auglýst var. í slíkum tilfellum fá menn auglýsingaféð sitt margfalt til baka. Hitt gerist því miður líka að menn þyrla upp moldviðri í kringum hluti sem rísa síðan ekki undir nafni. í slíkum tilfellum er peningunum oftast hent út um gluggann." Gunnar Steinn heldur áfram að nefna okkur vel þekkt dæmi um her- ferð sem m.a. var hleypt af stokkun- um til að hressa upp á ímynd fyrirtæk- is um leið og vöru þess var glæsilega komið á framfæri. „Stöð 2 tók ímynd sína hraustlega í gegn með auglýsingum. Hún hafði al- menningsálitið svolítið gegn sér, menn fengu sér margir hverjir mynd- lykil í svipuðum felum og þeir keyptu Samúel - það þótti a.m.k. ekki sérlega „fínt“ að eiga myndlykil og horfa á það sem Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri RÚV kallaði „þriðja flokks vídeóleigu með heimsendingarþjón- ustu“. Menn fóru í með- vitaðan slag við þessa fordóma, smæð Stöðvar 2 var unnin upp með stórum en hnyttnum dagblaðaauglýs- ingum og heilsíður í lit voru lágmarks- stærð. Menn gengu langt, voru djarf- ir, tóku stórt upp í sig, tengdu sig sterkt við menningu og listir, stríddu RUV með samanburði á dagskrárefni stöðvanna, óskuðu RÚV til hamingju með langþráðar útsendingar á fimmtudögum o.s.frv. I herferðina voru settir peningar langt umfram það sem eðlilegt hefði verið miðað við heildarveltu fyrirtækisins, nettótekj- ur þess eða annað sem gjarnan er miðað við. Oft voru auglýsingamar búnar til á mettíma, á hluta úr degi daginn fyrir birtingu o.s.frv. Á hinn bóginn höfðu menn heildarmarkmiðin á hreinu og Stöð 2 haslaði sér völl sem framtíðarsjónvarpsstöð á örfáum mánuðum. Rétt eins og í getraunadæminu er ég aftur að tala um árangur sem náð- ist ekki síst vegna jákvæðs samspils viðskiptavinar og auglýsingastofu, fullkomins trausts gagnvart stofunni og síðast en ekki síst vegna þess að varan sem í boði var stóð undir stóru orðunum." Gallupkönnun Frjálsrar verslunar er um margt athyglisverð og vert er að spá í ástæður þess að sum fyrir- tæki reynast vinsæl en önnur ekki. Þar er að finna fyrirtæki sem hafa keypt tiltölulega lítið af sérhönnuðum auglýsingum en engu að síður náð því að skapa sér sterka og jákvæða ímynd. Við spyrjum Gunnar Stein um ástæður þess að stórfyrirtækið Hag- kaup er í þessum flokki. „Árangur Hagkaupa er fyllilega verðskuldaður og um leið mjög eðli- legur. Hagkaup hefur í gegnum tíðina staðið sig afskaplega vel í þjónustu við íslenska neytendur. ímynd fyrirtæk- isins þarf ekki og á ekki að standa og falla með auglýsingum. Hjá Hagkaup- um eru það verkin sem tala. Hagkaup ruddu brautina fyrir stórauknu versl- unarfrelsi hér á landi og hafa átt drjúg- an þátt í að bæta lífskjör fólks. Öll munum við eftir stríðinu um að fá að selja bækur eða flytja inn kartöflur. „Kerfið“ brást til varnar og hags- munaaðilar eins og bóksalar og kart- öfluframleiðendur risu upp. En fólk skynjaði að barátta Hagkaupa var í þeirra þágu og þessar uppákomur skópu fyrirtækinu sterka ímynd sem brjóstvöm alþýðunnar gegn háu vöruverði og fyrir hagkvæmum inn- kaupum. Baráttan við „báknið“ vekur alltaf samúð og stuðning almennings. Bjórkaup Davíðs Sch. Thorsteins- sonar eru mönnum ennþá í fersku minni og eiga vafalaust drjúgan þátt í vinsældum hans.“ „Hagkaup hefði kannski náð ennþá lengra í þessari vinsældakosningu Frjálsrar verslunar ef fyrirtækið hefði í gegnum tíðina stillt Pálma í Hag- kaupum upp sem manninum í barátt- unni við „kerfið“. Ég er hins vegar sannfærður um að það er hárrétt stefna hjá Pálma að hafa fyrirtækið, en ekki sjálfan sig, í sviðsljósinu. Það er auðvelt að mola niður ímynd eins manns því ein krassandi kjaftasaga getur kippt fótunum undan sterkri og jákvæðri ímynd eins og dæmin sanna.“ Við spyrjum Gunnar Stein um dæmi þar sem annar póll hefur verið tekinn í hæðina en hjá Hagkaupum og áður var minnst á. „Fólk ferðaðist til útlanda fyrir ÍMYND FYRIRTÆKJA OG STJÓRNENDA Fyrir nokkru birti Frjáls verslun skoð- anakönnun sem blaðið lét Gallup á ís- landi gera sérstaklega fyrir sig um við- horf fólks til íslenskra fyrirtækja. Niður- stöður þessarar könnunar hafa vakið mikla athygli og leitt til umræðna um ímynd fyrirtækja og stjórnenda þeirra. Frjáls verslun gerir nú ímynd fyrir- tækja frekari skil með viðtölum við þrjá menn, þá Gunnar Stein Pálsson stjóm- arformann GBB Auglýsingaþjónustunn- ar en hann er gamalreyndur auglýsinga- maður, Davíð Sch. Thorsteinsson fram- kvæmdastjóra Sólar hf. sem reyndist njóta mestra vinsælda íslenskra fyrir- tækja í skoðanakönnun Frjálsrar versl- unar og Dr. Christian Roth forstjóra ÍS- AL en gjörbreytt stefna fyrirtækisins varðandi ímynd þess undir hans stjóm hefur vakið athygli að undanförnu. í umfjöllun þessari er mörgum merki- legum spurningum svarað og enn öðrum velt upp sem verðar eru íhugunar. Þar má nefna spuminguna um það hvort sjálfgefið sé að jafnaðarmerki sé milli góðrar ímyndar stjórnanda fyrirtækis annars vegar og fyrirtækisins sjálfs og þeirrar vöru eða þjónustu sem það selur. Hitt gerist líka að menn þyrla upp moldviðri í kringum hluti sem rísa síðan ekki undir nafni. 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.