Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 25

Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 25
nokkrum árum með Útsýn og Sunnu en þó öllu frekar með Ingólfi og Guðna. Eftir að Sunna hætti störfum stóð Ingólfur í Útsýn með flækta stöðu. Fylgismenn Guðna voru nán- ast aldir upp í persónulegri andúð á Ingólfi - og öfugt! Fólk mat einstak- lingana jafnvel meira en ákvörðunar- staði, verð, þjónustu o.s.frv. Ingólfi tókst aldrei að finnan annan einstakling til að berjast við eftir að Guðni í Sunnu hætti í ferðaiðnaðinum. Hann fékk nýja keppinauta, ekki síst Samvinnuferðir-Landsýn, sem stilltu sér upp sem „ferðaskrifstofa þöl- skyldufólks" með nýja staði, lágt verð, nýjungar í greiðslukjörum o.íl. „Guðnamenn", sem vildu sniðganga Ingólf, gátu leitað á nýjar slóðir og „Ingólfsmenn“ höfðu enga persónu- bundna ástæðu til að forðast þessa nýju aðila á markaðnum. Ingólfur Guðbrandsson er enn eitt dæmi þess að ímynd er sjaldnast sterkt söluvopn nema þegar hún er tengd góðri vöru, góðri þjónustu og góðu verði.“ í Gallupkönnun Frjálsrar verslunar vekur athygli að stærsta fyrirtæki landsins, Samband íslenskra sam- vinnufélaga fær slæma útreið. Hvert er mat Gunnars Steins Pálssonar á þeirri niðurstöðu. „Þá erum við komin að „Bjarti í Sumarhúsum". Könnunin speglar á vissan hátt andúð á stórum sam- steypum. Samúð fólks liggur frekar með einstaklingunum og litlu fyrir- tækjunum. Sambandið fær auðvitað sína útreið að auki vegna þess að það stendur sig illa gagnvart almenningi, þjónustugleðin er oft lítil og drifkraft- inn vantar. Dæmi um misheppnað ímyndar- átak er herferð þeirra „Vinnum sam- an“ sem út af fyrir sig var ágætlega hugsað auglýsingaátak, en byggt á sandi því innviðir fyrirtækisins voru veikir og þjónustan að flestra mati slæm. Sambandið líður auðvitað fyrir miklu meira. Það hirðir lítið um að skola af sér Framsóknarrykið, sem auðvitað stendur fyrirtækinu fyrir þrifum, það er í erfiðum málaferlum við kaupfélagsfólk og auðvitað hjálpa miklar sögur um rekstrarerfiðleika ekki upp á sakirnar." 25 AUK/SlA k3d4-686

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.