Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 26
En það er víðar
fólk en í fyrirtækj-
um. Stjórnmála-
mönnum er annt um
ímynd sína og sterk
hagsmunasamtök á
vinnumarkaði eiga
verulega mikið und-
ir því að hjörtu al-
mennings slái í takt
með þeim. En
hvernig hugsa þess-
ir aðilar um ímynd
sína. Látum Gunnar
Stein svara því.
„Enn og aftur
komum við að list-
inni að greina á milli
ímyndar einstak-
lings og þeirrar
stofnunar sem hann
veitir forstöðu;
stjórnmálamanns og
flokks, forstjóra og
fyrirtækis. Hverju
skila t.d. vinsældir
Steingríms Her-
mannssonar Fram-
sóknarflokknum í
atkvæðum? Eflaust
einhverju en örugg-
lega yrði það miklu
meira ef menn ynnu
markvisst í teng-
Dæmi um misheppnað
ímyndarátak er herferð SÍS
„Vinnum saman“. Það var byggt
á sandi því inniviðirnir voru
veikir.
ingu flokksins við
vinsælasta stjóm-
málamann þjóðar-
innar.
Almennt sýnist
mér þessir aðilar,
sem eilíft eru að
slást fyrir auknum
stuðningi almenn-
ings, láti sig faglega
aðstoð litlu skipta.
Hvaða ímynd vilja
Vinnuveitenda-
samband íslands
eða Alþýðusamband
íslands hafa?
Hvemig ætla menn
að ná þeirri ímynd?
Að hve miklu leyti á
hún að tengjast
þeim einstaklingum
sem í forsvari eru
hverju sinni? Ég hef
á tilfinningunni að
þessum spumingum
sé ósvarað á þess-
um tveim vígstöðv-
um, í mörgum
stjómmálaflokkum
og fjölmörgum öðr-
um samtökum sem
eiga daglegt erindi
til fólks - og jafnvel
Alhliöa viðgerðaþjónusta á öllum
tegundum mótora, tvígengis og
fjórgengis.
Díselviðgerðir.
Járnsmíði.
Sérhæfð viðgerðaþjónusta á
rafstöðvum, jarðvegsþjöppum,
steinsögum o.fl.
Sérhæfð viðgerðaþjónusta á
handlyfturum.
Skemmuvegur 34N, P.O. Box 346,
Kópavogur, símar: 641055 og 173013.
allt sitt undir því að fólkið fylki saman
sér um þær.
Það fer reyndar vaxandi að þessir
aðilar séu í einhverju sambandi við
fagfólk í auglýsinga- og kynningar-
starfi og á vafalaust eftir að aukast á
næstu árum. En þeir eru samt á eftir
miðað við t.d. þá áherslu sem stjórn-
„Það er auðvitað erfitt að
skýra niðurstöðu þessarar
könnunar hjá ykkur en ég get á
hinn bóginn sagt að við hjá Sól
hf. erum afskaplega ánægð
með þessa niðurstöðu og hún
hvetur okkur til að halda áfram
á sömu braut. Það að lenda í
efsta sæti kom þægilega á
óvart og ég er þess fullviss að
könnun Frjálsrar verslunar
verður til jiess að fyrirtæki
leggja sig enn betur fram um að
bæta ímynd sína,“ segir Davíð
Scheving Thorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Sól hf. en eins og
lesendum blaðsins er kunnugt
varð fyrirtæki hans í efsta sæti
í vinsældakönnun Gallup í 1.
tbl. Frjálsrarverslunar áþessu
ári.
Davíð segist hafa haft gaman af
því að spá í útkomu einstakra fyrir-
tækja í könnuninni því þar hafi margt
komið sér spánskt fyrir sjónir. „Það
er t.d. athyglisvert að útkoman
virðist ekki vera í neinu sambandi
við auglýsingar viðkomandi fyrir-
tækja. Ef við tökum sem dæmi
drykkjarvöruiðnaðinn eru fyrirtæki
eins og Vífilfell og Sanitas langt fyrir
neðan okkur enda þótt auglýsingar
frá þessum aðilum dynji yfir landslýð
í öllum miðlum árið út og árið inn.
Fleiramá nefna. Ferðaskrifstofur
komast ekki á blað og botnsætið
vermir sá aðili sem býður hvað mest
af ánægju og skemmtun á öldurhús-
um borgarinnar! Þessi fyrirtæki
eiga það sameiginlegt að bjóða okk-
ur vöru sem miðar að því að láta
okkur líða vel. Samt fá þau slæma
útreið.
Athyglisvert er að virða fyrir sér
útkomuna hjá sjávarútvegsfyrir-
26