Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 27
endur fyrirtækja leggja orðið á
trausta imynd gagnvart almenningi.“
Við tökum eftir skemmtilegum inn-
réttingum og rúmgóðu húsnæði GBB
Auglýsingaþjónustunnar og Gunnar
Steinn er spurður út í þá sálma um
leið og hann fylgir okkur til dyra.
„Auglýsingastofa nærist fyrst og
fremst á vellíðan starfsfólk síns; að
því líði vel í vinnunni, starfi í rúmgóðu
og örvandi umhverfi og njóti nærveru
hvers annars. Húsakynnin, vinnulag-
ið, kaffitímarnir, ferðalögin, skákin,
biljardinn, leikhúsferðimar og margt
fleira hjálpast allt að við að skapa and-
rúmsloft sem örvar okkur til dáða.
Þetta skapar allt saman ákveðna
ímynd af stofunni hér innanhúss. Auk
þess eru húsakynnin vafalaust ágætis
ímynd út á við. Auglýsingastofa þarf
að vera nútímaleg og svok'tið „smart“
í sér. Innréttingarnar eru dagleg ám-
inning til starfsmanna okkar um það.“
„GOTT VIÐMOT GULLI BETRA“
- SEGIR DAVÍÐ SCHEVING THORSTEINSSON HJÁ SÓL HF.
tækjum landsins. 12-15000 manns
vinna við sjávarútveg og flest erum
við meðvituð um að allt þjóðfélagið
byggir á þeim atvinnuvegi. En eng-
um dettur í hug að nefna sjávar-
útveginn í könnuninni. Sannarlega
umhugsunarvert fyrir þá sem eru
þar í forsvari."
Við spyrjum Davíð um kynni hans
af erlendum atvinnurekstri og hvort
þar séu menn meðvitaðri um þýð-
ingu góðrar ímyndar en kollegamir
heima á Fróni.
„Stjórnendur fyrirtækja erlendis
leggja miklu meira upp úr ímyndinni
en menn gera almennt hér heima.
Hins vegar hefur þetta verið að
breytast hér undanfarin ár og all-
mörg fyrirtæki eru með spreng-
lærða auglýsingasérfræðinga í sinni
þjónustu. Þá er ég ekki að tala um
auglýsingastofur heldur heilu deild-
irnar innan fyrirtækjanna sjálfra.
Flugleiðir, Hekla og Samband ís-
lenskra samvinnufélaga eru dæmi
um slík fyrirtæki. En hvar eru þau á
listanum góða? Hver er ímynd þess-
ara fyrirtækja í augum almennings?
Spurðu þá sem þar stjóma því það
væri fróðlegt að heyra svörin.“
Við spyijum Davíð hvort hann
telji að afskipti hans af Félagi ís-
lenskra iðnrekenda á sínum tíma
hafi gert hann í vitund fólks að hinum
vígreifa baráttumanni fyrir íslensk-
um iðnaði og að það skýri vinsæld-
imar.
„Ég hygg nú að á þeim árum hafi
maður aflað sér óvinsælda ekkert
síður en hitt. Á sama tíma var ég í
stjórn Vinnuveitendasambandsins
og barði á verkalýðnum! Varla hefur
það verið til að auka vinsældimar.
Hitt er svo annað mál að líklega fell-
ur það í kramið hjá landanum að við
hjá Sól höfum verið að baksa við að
flytja út Svala og átt í harðri baráttu
við að halda höfði í slagnum gegn
erlendu drykkjarvöruframleiðend-
unum. Kannski hefur
það haft sín áhrif.“
Davíð nefndi að lok-
um hversu þýðingar-
mikið gott viðmót í
fyrirtækjum væri. Hjá
Sól hf. væri fjöldi úr-
vals starfsmanna og
vildi hann sérstaklega
nefna dömurnar jmdis-
legu á símaborðinu.
„Símaborðið er and-
lit fyrirtækisins út á við
og hlýtt viðmót þar
getur haft meira að
segja en heilsíðu aug-
lýsing í Mogganum.
Því miður flaska mörg
fyrirtæki á þessu eða
hver kannast ekki við
fýlulega rödd í síman-
um sem gefur einna
helst til kynna að við-
skiptavinurinn sé að
gera óbætanlegt ónæði með því að
hringja.
Ég get nefnt dæmi um að gott
viðmót getur skipt sköpum. Fyrir
nokkrum árum fór ég og konan mín
til að kaupa bíl, sem ekki er í frásög-
ur færandi. Þar voru uppábúnir
„sölumenn" sem ekkert máttu vera
að því að sinna okkur. Hins vegar
varð á vegi okkar stúlka í afgreiðsl-
unni, sem bauðst undireins til að
lána okkur sinn eigin bíl, en hann var
sömu gerðar
og sá sem við
höfðum áhuga
á að kaupa.
Við prufuk-
eyrðum hann
og gengum frá
kaupum síðar
um daginn. En
það voru ekki
sölumennimir
uppábúnu sem
seldu okkur
bílinn, þótt
þeir hafi geng-
ið frá pappír-
unum, heldur
stúlkan góða í
afgreiðslunni,
sem skyldi að
gott viðmót er
gulli betra“,
sagði Davíð
Scheving að
lokum.
Davíð Scheving:
Stjórnendur erlendis leggja
meira upp úr ímyndinni en
menn gera hér heima.
27