Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 29
myndir um að þeir sem eru 65 ára
geti hætt störfum og fengið veru-
lega auknar lífeyrisgreiðslur frá því
sem nú er. Loks vil ég minnast á
ÁTAK, en það er víðtæk vinnuum-
hverfiskönnun, sem miðar að því að
bæta vinnustaðinn eftir ábendingum
starfsmanna.
Meginmarkmiðið er að bæta
samskiptin við starfsfólkið og skipt-
ast á skoðunum um rekstur fyrir-
tækisins. Fólkið sem hér vinnur á
sinn rétt á að fylgjast með og láta í
ljósi óskir sínar, enda er það hagur
ISAL að starfsmenn séu ánægðir á
vinnustað. Hinn meginþátturinn er
fólginn í heildstæðri umhverfis-
stefnu og breyttum samskiptum við
fjölmiðla og aðra aðila utan fyrirtæk-
isins.“
í spjalli okkar hverfur Dr. Roth
næst að umhverfismálum og er
greinilegt að þau skipa veigamikinn
sess í huga hans. Hann viðurkennir
að auk áhuga síns á bættu umhverfi
og vemdun náttúrunnar telji hann að
bætt staða þeirra mála treysti og
bæti ímynd fyrirtækisins út á við.
„í stuttu máli má segja að þessi
þáttur hjá ISAL lúti að mengunar-
vömum, endurvinnslu úrgangsefna
og fegrun umhverfis verksmiðjuna.
Við munum á næstu árum verja um
600 milljónum króna til að setja nýja
gerð af þekjum á öll ker í skálum
ISAL, m.a. í því skyni að minnka
mengun sem frá þeim stafar. Við
erum að fjölga rafmagnsfarartækj-
um á svæðinu, setja mengunarvarn-
arbúnað á díselbíla og hættum alger-
lega freonnotkun um síðustu ára-
mót.
Hvað endurvinnslu varðar reyn-
um við nú að endumýta sem mest af
fullnýttum kerj-
um, en áðurvar
þeim hent.
Verið er að at-
huga með end-
urvinnslu á
pappír og öðr-
um úrgangsefn-
um í samstarfi
við aðra aðila og
á skrifstofum
okkar er fyrst
og fremst not-
aður endurunn-
inn pappír. Við
höfum sett upp
álsöfnunarstöð í
Straumsvílr, en
þar geta menn
losað sig við
tómar áldósir
heiman frá sér,
en við sjáum um
að koma þeim í
endurvinnslu."
Fleira nefnir
dr. Roth, m.a. að næsta suinar eigi
að halda áfram að gróðursetja tré
við verksmiðjuna og rækta allt
svæðið milli skálanna og Reykjanes-
brautar.
Þá hefur nýi forstjórinn beitt sér
fyrir bættum samskiptum við fjöl-
miðla, Háskóla íslands, nærliggj-
andi sveitarfélög, ýmis klmarfélög
o.s.frv.
„Ég vil gjaman að
íslenska Álfélagið
beri nafn með rentu:
að það sé viðurkennt
sem fullgildur aðili
meðal íslenskra fyrir-
tækja og sé hluti af
íslensku þjóðlífi.
Verksmiðjan er búin
að vera á íslandi í 20
ár og hér starfa um
600 manns að jafnaði.
Mér finnst fyrir löngu
kominn tími til að við
reynum að eyða for-
dómum og samein-
umst í því að gera IS-
AL að betri vinnustað
um leið og við tökum
sameiginlega þátt í
því að fegra og bæta
umhverfi okkar“,
sagði dr. Christian
Roth forstjóri ISAL
að lokum.
Christian Roth:
Það er meðal annars hlutverk
mitt að breyta ímynd ÍSAL og ég
tel ákaflega mikilvægt að það
takist.
VEIST ÞU
Að um vogina þína fara mikil verðmæti og að
röng vog getur þýtt fjárhagslegt tjón fyrir þig.
Löggilding er viðurkenning á
gæðaframleiðslu og nákvæmni.
Er vogin þín löggilt?
Gættu aö því!
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandic Bureau of Legal Metrology
SÍÐUMÚLA13 - PÓSTHÓLF 8114 - (S-128 REYKJAVlK
<Of
29