Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 31

Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 31
sérkenni og draga að henni athygli í verslunum. Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir þessu vandamáli þegar ný vara er markaðssett, því það er ekki hægt að komast hjá því að gera ráð fyrir nægilegu plássi á umbúðunum til þess að gefa vörunni ímynd og gera hana sýnilega og áhugaverða fyrir neytandann. í „ísblómi" er fjórum „einmenning- um“ pakkað í litprentaðan hólk. HVAÐA LAUSNIR BJÓÐAST Það eru einkum tvær lausnir sem augun beinast að: 1. Flutningsumbúðir má í mörgum tilvikum þróa á þann veg að þær nýt- ist sem útstillingarumbúðir. Við það vinnst margt: * Útstillingaflöturinn stækkar sjónrænt gagnvart neytandanum og dregur til sín athygli ef umbúðimar eru vel hannaðar. * Flutningsumbúðir geta jafnvel raðast þannig að þær myndi sjálf- stæðan sölustand í versluninni. * Það sparast vinna og kostnaður í versluninni við að flytja úr kössum yfir í hillur. 2. Samtengdar einmenningsum- búðir. — Skrítið nafn? Ég er að leita að orði, finn ekkert betra í bili, reyni að skýra það með mynd: Þetta em t.d. 4 einmennings- skammtar, tengdir saman á lokinu. Kostnaðarins vegna á að takmarka prentun við lok. Gerum ráð fyrir að hvert lok sé 44 fersentímetrar. Ef þessar umbúðir væru seldar stakar færu a.m.k. 70% af plássinu í lög- boðnar og nauðsynlegar neytenda- upplýsingar ásamt strikamerkingu og dagstimplun. Þá væru aðeins 14 fer- sentímetrar eftir fyrir söluhlutverkið, sem er að sýna neytandanum vöruna. Hugmyndin um samtengdar ein- menningsumbúðir snýr hlutfallinu við, auglýsingaplássið stækkar í 176 fersentímetra. Eðlilegt hlutfall fer í upplýsingagjöf, u.þ.b. 25%, og eftir standa 75% til ráðstöfunar fyrir sölu- manninn. Neytendaupplýsingar og strika- merki taka æ stærra pláss á umbúð- Flutningsumbúðir má í mörgum til- vikum þróa á þann veg að þær nýtist sem útstillingarumbúðir. Þetta er snjöll hugmynd sem á sí- vaxandi fylgi að fagna erlendis. Al- gengt er að tveir, ijórir eða sex „ein- menningar“ séu tengdir. Ýmsar aðrar lausnir eru fyrir hendi, ég nefni sem dæmi „ísblóm" fyrir Emmess ís en þar er fjórum siimum „einmenning- um“ pakkað í litprentaðan hólk og ég get líka nefnt umbúðimar utan um innbakaðan Brie ost. Þar er aftur um frystivöru að ræða sem þarí á sér- um. Flutningsvagnar fyrir t.d. mjólkurumbúðir eru margnota og þurfa að þola hnjask, bleytu og kulda. Vagnarnir eru hannaðir þannig að þeir skyggja nær ekkert á vöruna en samröðun myndefnis og lita á innri umbúðum mynda stórar litaheildir. Neytandinn skilur lita- og myndmálið, jafnvel án þess að hann geri sér grein fyrir því sjálfur. 31

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.