Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 31
sérkenni og draga að henni athygli í
verslunum.
Það er mjög mikilvægt að gera sér
grein fyrir þessu vandamáli þegar ný
vara er markaðssett, því það er ekki
hægt að komast hjá því að gera ráð
fyrir nægilegu plássi á umbúðunum til
þess að gefa vörunni ímynd og gera
hana sýnilega og áhugaverða fyrir
neytandann.
í „ísblómi" er fjórum „einmenning-
um“ pakkað í litprentaðan hólk.
HVAÐA LAUSNIR BJÓÐAST
Það eru einkum tvær lausnir sem
augun beinast að:
1. Flutningsumbúðir má í mörgum
tilvikum þróa á þann veg að þær nýt-
ist sem útstillingarumbúðir.
Við það vinnst margt:
* Útstillingaflöturinn stækkar
sjónrænt gagnvart neytandanum og
dregur til sín athygli ef umbúðimar
eru vel hannaðar.
* Flutningsumbúðir geta jafnvel
raðast þannig að þær myndi sjálf-
stæðan sölustand í versluninni.
* Það sparast vinna og kostnaður í
versluninni við að flytja úr kössum
yfir í hillur.
2. Samtengdar einmenningsum-
búðir.
— Skrítið nafn? Ég er að leita að
orði, finn ekkert betra í bili, reyni að
skýra það með mynd:
Þetta em t.d. 4 einmennings-
skammtar, tengdir saman á lokinu.
Kostnaðarins vegna á að takmarka
prentun við lok. Gerum ráð fyrir að
hvert lok sé 44 fersentímetrar. Ef
þessar umbúðir væru seldar stakar
færu a.m.k. 70% af plássinu í lög-
boðnar og nauðsynlegar neytenda-
upplýsingar ásamt strikamerkingu og
dagstimplun. Þá væru aðeins 14 fer-
sentímetrar eftir fyrir söluhlutverkið,
sem er að sýna neytandanum vöruna.
Hugmyndin um samtengdar ein-
menningsumbúðir snýr hlutfallinu
við, auglýsingaplássið stækkar í 176
fersentímetra. Eðlilegt hlutfall fer í
upplýsingagjöf, u.þ.b. 25%, og eftir
standa 75% til ráðstöfunar fyrir sölu-
manninn.
Neytendaupplýsingar og strika-
merki taka æ stærra pláss á umbúð-
Flutningsumbúðir má í mörgum til-
vikum þróa á þann veg að þær nýtist
sem útstillingarumbúðir.
Þetta er snjöll hugmynd sem á sí-
vaxandi fylgi að fagna erlendis. Al-
gengt er að tveir, ijórir eða sex „ein-
menningar“ séu tengdir. Ýmsar aðrar
lausnir eru fyrir hendi, ég nefni sem
dæmi „ísblóm" fyrir Emmess ís en
þar er fjórum siimum „einmenning-
um“ pakkað í litprentaðan hólk og ég
get líka nefnt umbúðimar utan um
innbakaðan Brie ost. Þar er aftur um
frystivöru að ræða sem þarí á sér-
um.
Flutningsvagnar fyrir t.d. mjólkurumbúðir eru margnota og þurfa að þola
hnjask, bleytu og kulda. Vagnarnir eru hannaðir þannig að þeir skyggja nær
ekkert á vöruna en samröðun myndefnis og lita á innri umbúðum mynda
stórar litaheildir. Neytandinn skilur lita- og myndmálið, jafnvel án þess að
hann geri sér grein fyrir því sjálfur.
31