Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 33

Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 33
AUK HF. AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR: HEFUR SÉRHÆFT SIG í UMBÚÐAHÖNNUN Þessi vara er daglega á borðum flestra landsmanna. Umbúðir utan um mjólk og flestar mjólkurafurðir eru hannaðar hjá AUK. auk þess textamenn sem eru orðnir sér- hæfðir í umbúðahönnun." — Hvaða breytingar hafa orðið helst- ar á útliti umbúða á þessum árum? „Aukning á vöruframboði hefur kallað á aukna áherslu á vöruímyndina. Tækni- framfarir við ljósmyndun, hönnun, prentun og pökkun hafa auðvitað haft mikil áhrif. Það má því segja að umbúðir hafi breyst frá því að vera einfaldar, fremur stórar og oftast einlitar yfir í það að vera flóknari í gerð og efnisvali, smærri og litskrúðugri og tala þannig kröftugra myndmáli en fyrr. Á síðasta ára fékk AUK hönnunar- verðlaun Tetra Pak fyrir umbúðir utan um skólamjólk. Þetta var annað árið í röð sem AUK fékk þessi verðlaun. — Hafa framleiðendur ekki verið að vakna til vitundar á undanfömum árum um mikilvægi umbúða og umbúðahönn- unar, m.a. vegna aukinnar þýðingar stórmarkaðanna? „Á því leikur enginn vafi. Þeir vita sem er að umbúðir geta ráðið úrslitum um það hvort og hversu lengi vara lifir. Aðlögun eldri umbúða að nýjum kröfum hefur einnig aukist mjög og getur lengt líftíma vöm til muna.“ að undangenginni verðlaunasamkeppni meðal þeirra sem AUK hf skipulagði og sá um fyrir Mjólkurdagsnefnd. Frjáls verslun fékk Kristfnu Þorkels- dóttur hjá AUK hf til að skrifa stutta grein fyrir blaðið um hönnun umbúða með tilliti til söluhlutverks. — En við spyrjum Kristínu hvenær þau hafi byrjað að hanna umbúðir? „Ætli það séu ekki rúm 30 ár síðan ég hannaði mínar fyrstu umbúðir; form utan um mjólkurís fyrir Magna Guðmundsson á Laugavegi 28! En að gamni slepptu — við höfum hannað umbúðir hér á stofunni í þau 22 ár sem hún hefur starfað. Um- búðahönnun er vaxandi þáttur í starfi okkar og skemmtilegt að taka þátt í vömþróun á þennan hátt. Nú starfa mjög færir umbúðahönnuðir hjá AUK hf og Grafísk hönnun smjörumbúðanna hefur ekki breyst í gundvallar- atriðum í áratugi og stendur enn fyrir sínu. TEXTI: HELGI MAGNÚSSON 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.