Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 41
Gísli J. Johnsen og Skrifstofuvélar
einbeita sér nú að sölu á IBM PS/2
Nýverið hófst stóraukið sölu- og
markaðsátak á IBM PS/2 tölvum í nánu
samstarfi IBM á íslandi við systurfyrir-
tækin Gísli J. Johnsen sf. og Skrifstofu-
vélar hf. Þessi tvö kunnu fyrirtæki hafa
um árabil samanlagt verið stærsti sölu-
aðili IBM einmenningstölva hérlendis.
„Samhliða nýja samningnum munum
við fækka söluaðilum IBM PS/2 ein-
menningstölva," segir Friðrik Friðriks-
son, framkvæmdastjóri á markaðssviði
IBM. Sölusamningar við Örtölvutækni —
Tölvukaup hf. og Magnus sf. eru útrunnir
og verða ekki endurnýjaðir. Friðrik segir
ennfremur að nú sé megin áhersla lögð
á samstarfið við Gísla J. Johnsen og
Skrifstofuvélar. „Við vinnum einnig mun
nánar með þeim við markaðssetningu
og sölu en áður. Auk þess er náin sam-
vinna milli okkar um innkaup á IBM vör-
um. Með þessum nýja samstarfssamn-
ingi fyrirtækjanna eru báðir aðilar sann-
færðir um að hér verði um talsverða
magnaukningu á viðskiptum að ræða."
Hagstæðustu verðin á PS/2
Forráðamenn Gísla J. Johnsen og
Skrifstofuvéla hafa náð hagkvæmum
farmgjaldasamningum með því að fá
hverju sinni fulla gáma af tölvum og öðr-
um búnaði beint frá IBM verksmiðjun-
um. Þetta gerir fyrirtækjunum kleift að
bjóða enn hagstæðara vöruverð, en þau
bjóða nú hagstæðustu verðin á PS/2
tölvum á markaðinum.
„Hjá Gísla J. Johnsen og Skrifstofuvél-
um hefur átt sér stað endurmat á áhersl-
um milli vöruflokka, sem fyrirtækin hafa
á boðstólum. Þar ber hæst fækkun vöru-
merkja innan vöruflokka og stóraukin
áhersla á tölvusölu," segir Erling Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri og annar eig-
enda fyrirtækjanna. „Eftir að við gerðum
nýja samstarfssamninginn við ÍBM á ís-
landi, mun bæði GJJ og Skrifstofuvélar
einvörðungu einbeita sér að sölu á IBM
tölvum."
„Með þessu erum við fyrst og fremst
að auka þjónustu við viðskiptavini okkar,
styrkja sölusamstarfið við þessi tvö fyrir-
tæki og um leið tryggjum við enn aukna
hlutdeild IBM tölva á íslenska markaðin-
um,“ segir Friðrik.
I framhaldi af samstarfssamningnum
við IBM leita nú bæði fyrirtækin eftir sam-
starfs- og söluaðilum úti á landi og á
höfuðborgarsvæðinu, í Ijósi þess að um-
talsverð áhersla verður lögð á IBM sölu-
starfið og fyrirsjáanleg er aukin markaðs-
hlutdeild á tölvusviðinu.
Viðskiptavinir tengjast
Á undanfömum árum hefur orðið
ör þróun í tölvutengingum milli IBM
og viðskiptavina fýrirtækisins um all-
an heim. Þessa dagana kynnir IBM í
Evrópu nýja stefnumörkun, þar sem
þessi þjónusta er útfærð verulega.
Þarna er um að ræða stöðluð
tölvusamskipti (EDI) ásamt hefð-
bundnum gagnaflutningi, tölvupósti
og aðgangi að alþjóðlegum gagna-
grunnum og þjónustukerfum IBM
fyrirtækisins. IBM er nú leiðandi í
þjónustu á þessum vettvangi og býð-
ur hana með tvennum hætti:
1. Tenging á milli viðskiptavina
IBM (IBM Information Network —
IBM IN)
Nýlega byrjaði IBM að bjóða við-
skiptavinum sínum þá þjónustu að
tengjast öðrum fyrirtækjum með
tölvutengingu gegnum gagnanet
IBM. Með þessu nýtist fyrirtækjum hið
geysistóra alþjóðlega tölvunet IBM
(IBM Information Network), sem
spannar allan heiminn. Nú þegar hef-
ur mikill fjöldi fyrirtækja tengt tölvur
sínar þessu neti og hafa tölvusamb-
and við viðskiptavini sína í gegnum
það. Þjónusta þessi hefur mælst
mjög vel fyrir og vex hópur notenda
hröðum skrefum.
2. Tenging viðskiptavina við IBM
(IBMLINK)
Þegar AS/400 tölvukerfið var kynnt
íjúní 1988, kynnti ÍBM á íslandi aðra
þjónustunýjung, sem heitir DIAL-
IBM. AS/400 tölvan er sérstaklega
hönnuð til að tengjast alþjóðlegum
þjónustukerfum ÍBM. Nú þegar hafa
margar AS/400 tölvur á íslandi verið
tengdar við þetta net.
Þessir þjónustumöguleikar munu
án efa hafa mikil áhrif á tölvuvæðingu
fyrirtækja þegar fram í sækir. Á næst-
unni verður nánar greint frá þessum
nýjungum hér í Innskoti.
IBM hélt tölvusýningu dagana 14. og 15. febrúar á Akureyri. Þar voru sýndar helstu
nýjungar, millitölvurnar AS/400 og S/36, PS/2 með ýmsum hugbúnaði og versl-
anakerfið frá IBM svo nokkuð sé nefnt. Fjölmenni var á þessum tölvudögum á
Akureyri. Á myndinni má sjá Sigrúnu Hörpu Hafsteinsdóttur kerfisfræðing hjá IBM
sýna þremur áhugasömum það nýjasta. Þær eru frá vinstri: Aðalheiður Guðmunds-
dóttir frá Iðnaðarbankanum á Akureyri, Ingibjörg Ringsted og Margrét Melsted frá
Iðnaðarbankanum á Akureyri.
41