Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 42

Frjáls verslun - 01.03.1989, Síða 42
Fjölgun í AS/400 tölvufjölskyldu n ni Þann 21. febrúar sl. markaðssetti IBM áhugaverðar nýjungar fyrir AS/400 tölvurnar. Þessar nýjungar stuðla að því að viðskiptavinir IBM varðveiti enn frek- ar þá fjárfestingu sem þeir gera í tölvu- búnaði. Nýjungarnar gera mönnum nú kleift að stækka um meira en helming B20 gerðina ásamt því að ný vél B70 sér nú dagsins ljós. AS/400 tölvusamstæðurnar eru kraft- miklar og auðveldar í notkun og eru hannaðar fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki. Stækkunar- og tengingarmöguleikar þessara véla gera þær að auki hentugar sem deildar- eða útibústölvur fyrir fyrir- tæki sem eru með dreifða starfsemi. Helstu breytingar Helstu breytingar sem fram komu fyrir gerð B10 og B20 voru þær að nú er hægt að fá viðbyggingu við gerð B20. í þessa viðbyggingu er hægt að setja fjóra 315 MB diska ásamt viðbótar segulbands- stöð og disklingastöð. Fjarvinnslumögu- leikar aukast úr 8 fjarvinnslulínum í fjórt- án. Minni í gerð BIO stækkar úr 8 MB í 16 MB að hámarki og í gerð B20 úr 8 MB í 28 MB að hámarki. Viðbyggingin sem nú er fáanleg við gerð B20 lítur eins út og vélin sjálf og tengistvið vélina með þrem köplum sem fylgja búnaðinum. Hægt er að setja fjóra 315 MB diska í viðbygginguna eins og áður sagði. Þetta þýðir að diskapláss 1. tbl. - 3. árg. 1989 Útgefandi: IBM á fslandi Skaftahlíð 24,105 Reykjavík Ábyrgðarmaður: Gunnar M. Hansson forstjóri Efnisstjóri: Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Umsjón: Kynning og Markaður — KOM h.f. Fjölmiðlum er frjálst að nota efni úr blaðinu í heild sinni eða að hluta, en eru þá vinsamlegast beðnir að geta heimildar. stækkar úr 945 MB í 2.205 MB eða um meira en helming. Efviðskiptavinur velur viðbótar segulbandsstöð er aðeins hægt að hafa þrjá 315 MB diska í viðbygging- unni og er þá hámarks diskapláss 1.890 MB. Þeir viðskiptavinir sem hugsa sér að byrja smátt en vilja eiga þess kost að stækka tölvubúnaðinn eftir því sem tölvuvæðing kemst á geta byrjað með því að kaupa sér litla B10 gerð og stækka hana síðan í hámarksstærð af B20 gerð. Það er líka mjög hentugt að þurfa ekki að fastsetja peninga í tölvubúnaði fyrr en þörf er á. Hraðvirkari tölva og nýir diskar Nýja tölvan B70 stækkar enn frekar AS/400 tölvufjölskylduna. Viðskiptavinir eiga nú kost á hraðvirkari tölvu og innra minni ásamt enn stærra diskarými, fleiri notendum og fjarvinnslulínum. í vélinni er nýtt minnisspjald, um 30% hraðvirk- ara en önnur minnisspjöld í AS/400. Þetta minnisspjald er einungis fyrir gerð B70. Markaðssetningin á B70 er svar IBM við síauknum kröfum viðskiptavina IBM um stækkunarmöguleika. Samfara þessum breytingum kemur nú einnig ný gerð af diskum. (Jm er að ræða svo kall- aða 9332 diska sem við þekkjum sem 400 MB diska, en nú eiga viðskiptavinir IBM kost á að fá 600 MB diska. Það gerir það að verkum að hámarksstærðir á diskum breytast á öllum stærri AS/400 tölvunum. Nú er hámarksstærð á disk- um fyrir gerð B30 og B40 9.600 MB en var áður 6.200 MB. Hámarksstærð á diskum fyrir gerð B50 er nú 19.200 MB en var áður 13.200 MB. Og hámarks- stærð á diskum fyrir gerð B60 er 38.400 MB en var áður 27.200 MB. Með eru einnig fáanlegir diskar að hámarksstærð 38.400 MB fyrir gerð B70. Hafið samband við sölumenn IBM og þeir munu fúslega veita ykkur frekari upplýsingar. Hér má sjá nokkra áhugasama nemendur í Hjallaskóla, í Kópavogi, ásamt Kristínu Steinarsdóttur, kerfisfræðings hjá IBM, við tækjabúnaðinn sem skólinn hlaut að gjöf frá IBM á íslandi í janúar sl., í tengslum við íslenskt-danskt samskiptaverkefni á grunnskólastigi. Með þessum tölvubúnaði tengist Hjallaskóli, ásamt Foldaskóla, Grunnskólanum í Þorlákshöfn og Hallormsstaðaskóla, sem fengu samskonar gjöf frá IBM, við erlendar skólastofnanir. Nú hafa þrír skólar til viðbótar bæst í hópinn; Ketilstaðaskóli í Mýrdalshreppi, Seljalandsskóli í V-Eyjafjallahreppi og Melaskóli og fleiri skólar hafa sýnt áhuga á þessu verkefni. í framhaldi af tölvukaupum Ketilstaða- skóla og Seljalandsskóla var haldið sameiginlegt námskeið fyrir mjög áhugasama kennara skólanna. Þess má geta að IBM á íslandi í samvinnu við Gísla J. Johnsen og Skrifstofuvélar bjóða þeim skólum sem eiga IBM-búnað aðstoð og þjónustu sem þarf til að tengjast þessu verkefni. 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.