Frjáls verslun - 01.03.1989, Qupperneq 42
Fjölgun í AS/400 tölvufjölskyldu n ni
Þann 21. febrúar sl. markaðssetti
IBM áhugaverðar nýjungar fyrir AS/400
tölvurnar. Þessar nýjungar stuðla að því
að viðskiptavinir IBM varðveiti enn frek-
ar þá fjárfestingu sem þeir gera í tölvu-
búnaði. Nýjungarnar gera mönnum nú
kleift að stækka um meira en helming
B20 gerðina ásamt því að ný vél B70 sér
nú dagsins ljós.
AS/400 tölvusamstæðurnar eru kraft-
miklar og auðveldar í notkun og eru
hannaðar fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki.
Stækkunar- og tengingarmöguleikar
þessara véla gera þær að auki hentugar
sem deildar- eða útibústölvur fyrir fyrir-
tæki sem eru með dreifða starfsemi.
Helstu breytingar
Helstu breytingar sem fram komu fyrir
gerð B10 og B20 voru þær að nú er hægt
að fá viðbyggingu við gerð B20. í þessa
viðbyggingu er hægt að setja fjóra 315
MB diska ásamt viðbótar segulbands-
stöð og disklingastöð. Fjarvinnslumögu-
leikar aukast úr 8 fjarvinnslulínum í fjórt-
án. Minni í gerð BIO stækkar úr 8 MB í 16
MB að hámarki og í gerð B20 úr 8 MB í
28 MB að hámarki.
Viðbyggingin sem nú er fáanleg við
gerð B20 lítur eins út og vélin sjálf og
tengistvið vélina með þrem köplum sem
fylgja búnaðinum. Hægt er að setja fjóra
315 MB diska í viðbygginguna eins og
áður sagði. Þetta þýðir að diskapláss
1. tbl. - 3. árg. 1989
Útgefandi: IBM á fslandi
Skaftahlíð 24,105 Reykjavík
Ábyrgðarmaður: Gunnar M.
Hansson forstjóri
Efnisstjóri: Friðrik
Friðriksson
framkvæmdastjóri
Umsjón: Kynning og
Markaður — KOM h.f.
Fjölmiðlum er frjálst að nota
efni úr blaðinu í heild sinni
eða að hluta, en eru þá
vinsamlegast beðnir að geta
heimildar.
stækkar úr 945 MB í 2.205 MB eða um
meira en helming. Efviðskiptavinur velur
viðbótar segulbandsstöð er aðeins hægt
að hafa þrjá 315 MB diska í viðbygging-
unni og er þá hámarks diskapláss 1.890
MB.
Þeir viðskiptavinir sem hugsa sér að
byrja smátt en vilja eiga þess kost að
stækka tölvubúnaðinn eftir því sem
tölvuvæðing kemst á geta byrjað með
því að kaupa sér litla B10 gerð og stækka
hana síðan í hámarksstærð af B20 gerð.
Það er líka mjög hentugt að þurfa ekki að
fastsetja peninga í tölvubúnaði fyrr en
þörf er á.
Hraðvirkari tölva og nýir diskar
Nýja tölvan B70 stækkar enn frekar
AS/400 tölvufjölskylduna. Viðskiptavinir
eiga nú kost á hraðvirkari tölvu og innra
minni ásamt enn stærra diskarými, fleiri
notendum og fjarvinnslulínum. í vélinni
er nýtt minnisspjald, um 30% hraðvirk-
ara en önnur minnisspjöld í AS/400.
Þetta minnisspjald er einungis fyrir gerð
B70.
Markaðssetningin á B70 er svar IBM
við síauknum kröfum viðskiptavina IBM
um stækkunarmöguleika. Samfara
þessum breytingum kemur nú einnig ný
gerð af diskum. (Jm er að ræða svo kall-
aða 9332 diska sem við þekkjum sem
400 MB diska, en nú eiga viðskiptavinir
IBM kost á að fá 600 MB diska. Það gerir
það að verkum að hámarksstærðir á
diskum breytast á öllum stærri AS/400
tölvunum. Nú er hámarksstærð á disk-
um fyrir gerð B30 og B40 9.600 MB en
var áður 6.200 MB. Hámarksstærð á
diskum fyrir gerð B50 er nú 19.200 MB
en var áður 13.200 MB. Og hámarks-
stærð á diskum fyrir gerð B60 er 38.400
MB en var áður 27.200 MB. Með eru
einnig fáanlegir diskar að hámarksstærð
38.400 MB fyrir gerð B70.
Hafið samband við sölumenn IBM og
þeir munu fúslega veita ykkur frekari
upplýsingar.
Hér má sjá nokkra áhugasama nemendur í Hjallaskóla, í Kópavogi, ásamt Kristínu
Steinarsdóttur, kerfisfræðings hjá IBM, við tækjabúnaðinn sem skólinn hlaut að
gjöf frá IBM á íslandi í janúar sl., í tengslum við íslenskt-danskt samskiptaverkefni á
grunnskólastigi. Með þessum tölvubúnaði tengist Hjallaskóli, ásamt Foldaskóla,
Grunnskólanum í Þorlákshöfn og Hallormsstaðaskóla, sem fengu samskonar gjöf
frá IBM, við erlendar skólastofnanir. Nú hafa þrír skólar til viðbótar bæst í hópinn;
Ketilstaðaskóli í Mýrdalshreppi, Seljalandsskóli í V-Eyjafjallahreppi og Melaskóli og
fleiri skólar hafa sýnt áhuga á þessu verkefni. í framhaldi af tölvukaupum Ketilstaða-
skóla og Seljalandsskóla var haldið sameiginlegt námskeið fyrir mjög áhugasama
kennara skólanna. Þess má geta að IBM á íslandi í samvinnu við Gísla J. Johnsen
og Skrifstofuvélar bjóða þeim skólum sem eiga IBM-búnað aðstoð og þjónustu
sem þarf til að tengjast þessu verkefni.
42