Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 45
hann teldi stjómendur nútímans vera
að vakna til vitundar um mikilvægi
þess að laga þetta íslenska fundamód-
el - að fækka fundum, stytta þá og
gera þá skilvirkari? „Nei, því miður
hef ég ekki fundið fyrir neinni vakn-
ingu í þá áttina,“ sagði hann.
ÚTGÖNGULEIÐ OG AFSÖKUN
„Fundir eru nauðsynlegt boðmiðl-
unartæki en það er auðvitað mjög
misjafnt hvað menn kalla fundi. Er
það til dæmis fundur þegar tveir
menn ákveða að hittast og tala sam-
an? Einnig er ég ansi hæddur um að
stjórnendur séu ekki alltaf á fundum
þótt þeir biðji fyrir þau skilaboð þegar
þeir annað hvort þurfa frið til að sinna
sínum störfum eða vilja ekki tala við
þá sem falast eftir samtali. Á þennan
hátt eru fundir notaðir sem útgöngu-
leið eða afsökun," sagði Gunnar Helgi
Hálfdánarson framkvæmdastjóri
Fjárfestingafélagsins í samtali við
Frjálsa verslun.
„Bankastjórar eru til dæmis frægir
fyrir misnotkun á fyrirbærinu fundur.
Það er aldrei hægt að ná til þeirra
vegna þess að skilaboðin eru þau að
þeir séu á fundi. En er það satt í öllum
tilvikum? Ég efast um það,“ sagði
Gunnar Helgi.
Gunnar Helgi sagði að fundir gætu
verið mjög gagnlegir og árangursrílrir
ef stjórnendur fundanna væru vel
undirbúnir og skipulagðir og ef fund-
armenn hefðu undirbúið sig vel. „Hjá
sumum er þetta til fyrirmyndar en
almennt má segja að of langur tími fari
í ómarkvissar umræður á fundum og
þess vegna eru þeir iðulega of langir.
En fundir eru auðvitað jafn misjafnir
og markmiðin með þeim. Erum við að
ræða um fundi með starfsfólki innan
fyrirtækis eða stjórnarfundi, fundi hjá
framkvæmdastjórn stofnunar eða fé-
lagsfundi hjá stórum aðildarfélögum.
Tilgangur og markmið funda geta
verið svo ólík. Þess vegna er svo
erfitt að tala um fundi almennt og al-
hæfa eitthvað um fyrirbærið. Að
mínu viti eru þó innri fundir - fundir
með starfsfólki innan fyrirtækis -
miklu mikilvægari en ytri fundir.“
Gunnar Helgi var spurður að því
hvort hann héldi að stjómendum
fyndist jafnvel þægilegt í amstri dags-
ins að setjast á fund og losna þar með
frá argaþrasi starfsins um stund? „Ef
stjórnendur fyrirtækja líta á fundi sem
45