Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 46
STJÓRNUN
eitthvert afslöppunartækifæri er lík-
lega eitthvað mikið að hjá mönnunum
sjálfum og slíkt viðhorf hlýtur að
skaða viðkomandi fyrirtæki.“
ORKUFREKIR FUNDIR
„Þeir fundir sem ég þekki til og
tíðkast í starfsgrein minni eru yfirleitt
mjög erfiðir og orkufrekir. Við erum
að leiða saman fámennan hóp af fólki
sem hefur deildar meiningar í við-
kvæmum málum. Upp geta risið
harkalegar deilur og örðugt getur
reynst að miðla málum,“ sagði Svala
Thorlacius lögfræðingur í samtali við
Frjálsa verslun en hún rekur lög-
mannsstofu í eigin nafni.
Svala sagðist ekki hafa kynnst því á
sínum ferli að fundir væru afslappandi
og þægilegir, hvorki fundir sem hún
sæti innan síns fyrirtækis eða utan
þess. „Ég fer ekki á fundi utan míns
starfssviðs nema ég telji mig hafa
gagn af þeim. Mitt viðhorf er því það
að fundir séu almennt árangursríkir
og gagnlegir. Samkvæmt minni
Hönnuðir umbúða - innflytjendur - framleiðendur
FORÐIST MISTÖK
Gætiö þess aö ákvæöi reglugeröar nr. 408/1988,
um merkingu neytendaumbúöa fyrir matvæli og
aörar neysluvörur séu ávallt uppfyllt
Sérprentun á framangreindri reglugerö ásamt
aukaefnalista fæst á skrifstofu heilbrigöis eftirlits
Reykjavíkur, Drápuhlíö 14, 105 Reykjavík
Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 8.20 - 16.15
Heilbrigöiseftirlitiö er ávallt reiöubúiö aö veita
leiöbeiningar um umbúöamerkingar.
Heilbrigöiseftirlit Reykjavíkur
Gunnar Helgi Hálfdánarson:
Bankastjórar eru frægir fyrir misnotkun
á fyrirbærinu fundur. Það er aldrei
hægt að ná til þeirra vegna þess að
skilaboðin eru þau að þeir séu á fundi.
Svala Thorlacius:
Fundir í minni starfsgrein eru yfirleitt
mjög erfiðir og orkufrekir þar sem
viðkvæm mál eru til umfjöllunar og
deildar meiningar.
46