Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 48
STJORNUN
mikið sé um vonda fundi. Ennfremur
má segja að fundir séu jafn góðir og
mennimir sem þeim stjórna. Fundar-
gestir verða auk þess að vera vel und-
ir fundina búnir og umræðan má ekki
fara út um víðan völl. En flestum þeim
fundum sem ég hef setið hefur að
mínu mati ekki verið nægilega vel
stjómað og ég reyni að sækja eins fáa
fundi og ég kemst af með. Hins vegar
er nauðsynlegt að boða fundi innan
stjórnkerfisins til þess að ná fram ein-
ingu og samþykki um tilteknar að-
gerðir,“ sagði Stefán Friðfinnsson að-
stoðarmaður utanríkisráherra.
Að mati Stefáns eru fjölmennir
fundir óæskilegir og allt of tíðir hér á
Islandi. „Hvort sem þú ert á fundi eða
við nefndarstörf er það nú einu sinni
þannig að aðeins fáeinir menn gera
allt sem gera þarf en hinir ekki neitt
og þess vegna er viðvera þeirra í raun
óþörf. Bestu fundimir em þeir sem
aðeins einn er viðstaddur, það sparar
verulegan tíma. Kannski er mjög
kaldhæðnislegt af mér að segja þetta
en ég læt það flakka. En ég vil ítreka
þá skoðun mína að fundir geti verið
mjög gagnlegir. Japanir sem þekktir
eru fyrir að taka skynsamlegar
ákvarðanir em sagðir fundaglöðustu
menn í heimi. Það tekur þá langan
tíma og marga fundi að komast að
niðurstöðu og taka ákvörðun í málum
en þegar ákvöðunin liggur fyrir þá eru
þeir tilbúnir til að framkvæma það
sem þeir ákváðu og starfa þá allir sem
einn samkvæmt því,“ sagði Stefán.
„Ómarkvissir fundir hafa vissulega
verið ákveðið vandamál í mínum
störfum. Fundirnir eru of margir og
ekki nógu vel skipulagðir en ég og
fleiri sem starfa innan auglýsinga-
bransans verða að taka sér tak, stytta
fundi og gera þá markvissari. Stund-
um eru fundimir það margir að maður
hefur ekki tíma til að sinna sínum dag-
legu verkefnum. Með auknum aga og
meiri reynslu í stjórnun mun mér og
fleirum takast að breyta þessu
ástandi til batnaðar," sagði Jónas
Ólafsson framkvæmdastjóri íslensku
auglýsingastofunnar.
Lýður Á. Friðjónsson fram-
kvæmdastjóri Vífilfells hf. og einn af
leiðbeinendum Stjómunarfélags ís-
lands hafði þetta að segja um fundi:
„Eftir því sem fyrirtæki og skipu-
lagseiningar innan þeirra eru stærri
verða skipulögð samskipti nauðsyn-
legri til þess að allir starfsmenn fyrir-
tækisins geti unnið sem ein heild.
Fundir eru ein leið til þess að hafa slík
formleg samskipti og þess vegna
nauðsynlegir. Síðan má deila um það
hvort fundir séu of margir eða of lang-
ir. Þeir fundir sem ég hef sótt hafa
yfirleitt verið of langir og þeim illa
stjórnað og þar af leiðandi tafsamir og
slæmir. Ég nefni dæmi sem getur
skýrt hvað ég á við: Menn eru boðað-
ir á fund á ákveðnum degi og tekið er
fram að fundurinn eigi að standa í
klukkustund eða frá kl. 12.00 -13.00.
Ákveðin mál á að taka fyrir og af-
greiða á þeim tíma. En hvað gerist?
Menn eru að rabba fram og til baka
um eitt tiltekið mál þar til klukkan er
farin að ganga þrjú og flýta sér síðan
að afgreiða öll hin málin á dagskrá til
stór liður í endurhæf ingu og úthaldi
DONJOY varmahlífar eru léttar og liprar og hindra ekki eðlilegar hreyfingar
Þær veita góðan stuðning jafnframt því að halda hita
á liðamótum. Þannig geta DONJOY varmahlífar
dregið úr hættu á meiðslum. Þær eru einnig sérlega
hentugar fyrir fólk með liðagigt og ómissandi við
ýmiss konar endurhæfingu.
Ki eomegar
n
OSSUR HVERFISGATA 105
SlMI: 91-621460