Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 64
FJARMAL
gáfa ekki heldur valdið mismunun milli ein-
stakra hluthafa að þessu leyti.
En í lok desember sl. tók Alþingi
ákvörðun um að u.þ.b. tvöfalda eignar-
skatt einstaklinga. Eignarskattur félaga er
nú 1,45% þegar svonefndur Þjóðarbók-
hlöðuskattur er meðtalinn. Eignarskattur
einstaklinga er hins vegar þannig að af
fyrstu 2,5 milljónum króna greiðist enginn
skattur, af næstu 1 milljón og 750 þúsund-
um króna greiðast 1,2% og af næstu 2
milljónum 750 þúsundum króna greiðast
1,45%. Af stofni yfir 7 milljónir króna
greiðist hins vegar 2,95% eignarskattur
og er þá, eins og í hinum tölunum líka,
Þjóðarbókhlöðuskatturinn, 0,25%, með-
talinn, en hann greiðist af hreinni eign yfir
4 milljónum og 250 þúsundum króna.
Ef gert er ráð fyrir að jöfnunarhlutabréf
lendi í hæsta eignarskattsþrepi hjá hlut-
hafa, sem er einstaklingur, greiðir hann
2,95% í eignarskatt eða 1,5% hærri eign-
arskatt en félagið myndi gera ef jöfnunar-
hlutabréfin væru ekki gefin út og einnig
1,5% hærri eignarskatt en hluthafi sem er
fyrirtæki eða svonefndur lögaðili.
BREYTT VIÐHORF TIL
JÖFNUNARBRÉFAÚTGÁFU
Af þessum sökum kann að reynast
ástæða fyrir okkur að endurskoða á næstu
misserum stefnu bankans varðandi útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, því ekki er ólíklegt að
sumir hluthafar a.m.k. leggi í framtíðinni
minni áherslu á útgáfu jöfnunarhlutabréfa
en að öðru jöfnu meiri áherslu á úthlutun
arðs og virkan hlutabréfamarkað.
í hnotskum hefur tilgangur jöfnunar-
bréfaútgáfu á undanfömum ámm verið sá,
að hækka nafnverð hlutafjárins þannig, að
það sem menn hafa litið á sem hámarks-
arðprósentu gefi hluthöfum raunhæfa
ávöxtun. Þessi aðferð byggir á tveimur
meginforsendum. Annars vegar er gert
ráð fyrir, að markaður með hlutabréf sé
mjög ófullkominn ef hann er þá yfirhöfuð
nokkur. Hin forsendan er sú, að 10% arð-
ur af nafnverði hlutaíjárins sé hámark,
sem ekkert vit sé í að fara yfir. Þessi 10%
regla á sér stoð á tveimur stöðum í lögum
um tekju- og eignarskatt. í fyrsta lagi er
ákvæði sem segir, að hlutafélagi sé heimilt
að greiða allt að 10% arð af nafnvirði hluta-
íjár og sé sú greiðsla frádráttarbær frá
tekjum. Greiði félagið arð umfram 10% er
viðbótin ekki frádráttarbær. í annan stað
er ákvæði um það, að einstaklingar megi
færa til frádráttar fenginn arð af hluta-
bréfaeign, þó að hámarki 10% af nafnvirði
hvers einstaks hlutabréfs. Að auki er þak
á því hversu mikill þessi frádráttur má
vera í krónutölu.
HLUTABRÉFAMARKAÐUR EFLIST
Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað
undanfarin misseri, að nokkur markaður
hefur myndast fyrir hlutabréf. Það er mik-
ilvægur þáttur í hluthafastefnu Iðnaðar-
bankans að styðja við þróun þessa mark-
aðar. Hefur það verið gert með ýmsum
hætti. A þann hátt eru sköpuð skilyrði til
þess að eðlilegt verð sé á hverjum tíma á
hlutabréfum í bankanum og þannig geti
hluthafar keypt og selt bréf eftir óskum og
áhuga hverju sinni. Ut frá þessu sjónar-
miði mun þýðing jöfnunarbréfaútgáfu því
fara minnkandi á komandi árum.
En á sama tíma verðum við að hætta að
líta svo á, að 10% arður sé undir öllum
kringumstæðum hámark, sem ekki borgi
sig að fara yfir. Ljóst er að arðgreiðslur
yfir 10% kæmu af hagnaði eftir skatta.
Enginn frádráttur fengist vegna þessa en
hann fæst heldur ekki ef hagnaðinum er
ekki úthlutað. Það fer hins vegar eftir
skattalegri stöðu einstakra hluthafa hver
þeirra skattgreiðsla yrði en í stórum drátt-
um yrði úthlutun umfram 10% skattskyld
hjá þeim öllum.
Loks er á það að Iíta, að regluf skatta-
laganna um meðferð söluhagnaðar á hluta-
bréfum, það sem á erlendu máli er kallað
„capital gain,“ eru í meginatriðum þannig,
að þær eiga að tryggja hluthöfum, að ein-
ungis sé greiddur skattur af verðmæta-
aukningu umfram verðlagsbreytingu.
Hluthafar geta valið tvær aðferðir við
uppgjör söluhagnaðar á skattskýrslum en
tilgangur beggja aðferðanna er sá sami, að
tekjuskattur leggist eingöngu á raunaukn-
ingu verðmæta en ekki verðbólguhagnað.
Af öllu þessu samanlögðu, hluthafar
góðir, sýnist mér, að við óbreyttar skatta-
reglur sé þýðingarmest af öllu að efla við-
skipti á hlutabréfamarkaði því eftir sem
honum vex fiskur um hrygg og hann nálg-
ast að líkja eftir hinum stóru fjármagns-
mörkuðum úti í heimi, þá skiptir ekki máli
lengur, hvort hlutafélag greiðir hluthöfum
sínum arð eða hvort hann er kyrrsettur í
rekstrinum. Það sem öllu skiptir er arð-
semi eigin ljárins sem hefur síðan bein
áhrif á verð hlutabréfa á markaði. Hluthafi
sem æskir þess að hafa árlegar tekjur, eða
fá þær jafnvel oftar, af sínum hiutabréfum,
getur þá einfaldlega selt h'tinn hluta bréf-
anna hverju sinni og á þann hátt verið jafn
vel settur eins og ef arður hefði verið
greiddur út.
BREYTT STEFNA í FRAMTÍÐINNI
Þau sjónarmið, sem ég hef nú verið að
lýsa, hafa væntanlega áhrif á stefnu bank-
ans íþessum efnum á næstu misserum en
ekki er talið tímabært að gera breytingar
núna. Þess vegna gerir bankaráðið tillögu
um, að greiddur verði arður til hluthafa
með hefðbundnum hætti, en að hann
hækki og verði nú 10% í stað 9,5% á síð-
asta ári. Þetta þýðir að 51 milljón króna
verður greidd út til hluthafa.
Þá leggur bankaráðið til að fylgt verði
óbreyttri stefnu um úthlutun jöfnunar-
hlutabréfa, þ.e. að svonefndri vísitölu
jöfnunarhlutabréfa verði fylgt nákvæm-
lega.
Ráöstefnuhald í Hótel Borgarnesi
Hótel Borgarnes býður upp á fyrsta flokks aðstöðu
fyrir ráðstefnur, fundi og námskeið.
Akjósanlegur áningarstaður á ferðalagi.
Gisting í 1-2 eða 3 manna herbergjum með eða
án baðs.
Allar veitingar
Verið velkomin
Hótel Borgames
Borgarnesi - Sími (93) 71119 og 71219
64