Frjáls verslun - 01.05.1990, Blaðsíða 15
FRETTIR
1 oy"
TVEIR FYRIR EINN
Klúbbur, sem nefndur
er ONE FOR TWO INT-
ERNATIONAL, hefur nú
verið opnaður íslending-
um. Það er Pétur Jóhann-
esson sem er umboðs-
maður hans hér á landi.
Hugmyndin á bak við
þennan klúbb er sú að fé-
lögum í honum gefst kost-
ur á að fá mat og þjónustu
fyrir tvo á þeim veitinga-
húsum sem eru aðilar að
þessum samtökum er
greiða síðan aðeins fyrir
einn. Starfsemin mun
fara þannig af stað á ís-
landi að 10 veitingahús á
höfuðborgarsvæðinu
hafa þegar samþykkt að
taka þátt í þessari
skemmtilegu nýjung hér
á landi og bjóða alla hand-
hafa slíkra korta vel-
komna að reyna viðskipt-
in og taka með sér gest.
Ein heimsókn á ári er
heimiluð á hvert veit-
ingahús. Þessi veitinga-
hús standa til boða: Hall-
argarðurinn, Hótel Loft-
leiðir, Café Ópera, Hótel
Óðinsvé, Viðeyjarstofa,
Lækjarbrekka, Jónatan
Livingston Mávur,
Mandarin, Potturinn og
pannan og A.Hansen.
Klúbburinn er öllum
opinn. Árgjald er 3.900
krónur og fyrir þá fjárhæð
fást tvö alþjóðakort sem
gilda í mörgum löndum
Evrópu.
ESSO/SKEUUNGUR:
OUUVIÐSKIPTIN GANGA VEL
Olíufélagið hf. og
Skeljungur hf. hafa hald-
ið aðalfundi sína. Afkoma
fyrirtækjanna var góð á
síðasta ári og staða þeirra
beggja er afar sterk og
með því besta sem gerist
hér á landi.
Hagnaður Skeljungs
nam 52 milljónum króna,
sem var mikil aukning frá
árinu á undan, en þá nam
hagnaður 11 milljónum.
Heildarvelta var 4.151
milljón króna og hafði
aukist um 25.7% frá ár-
inu á undan. Bókfærð eig-
infjárstaða í árslok var
1.827 milljónir króna,
eða 53.3% af heildareign-
um. Eigið fé hafði aukist
úr 1420 milljónum árið á
undan.
Hagnaður Olíufélags-
ins hf. og dótturfélaga var
76 milljónir á árinu 1989
og hafði dregist saman frá
árinu á undan en þá nam
hann 100 milljónum
króna. Heildarvelta var
6.147 milljónir króna og
hafði aukist um 28% frá
árinu á undan. Bókfærð
eiginfjárstaða í árslok
var 2.754 milljónir króna
og hafði aukist úr 2.169
milljónum frá árinu á
undan. Hlutfall eiginfjár
af heildareignum er
60.1% í árslok 1989.
GOLDSTAR TIL ÍSLANDS
Goldstar Tele-
communications í Kóreu
hyggur nú á stórfellda
landvinninga í Evrópu
fyrir símabúnað sinn. Is-
land var valið sem til-
raunamarkaður í þeirri
áætlun. Umboðsfyrirtæki
Goldstar á Islandi, Krist-
all hf. í Skeifunni 11B,
fékk fyrirtækið til að
ganga í einu og öllu að
kröfum Pósts og síma um
gæðastaðal fyrir íslenskt
samskiptaumhverfi og er
þegar farið að selja sí-
mtæki frá þeim hér á sér-
stöku tilboðsverði.
Goldstar Tele-
communications er dótt-
urfyrirtæki kóreska stór-
fyrirtækisins Lucky Ltd.,
sem stofnað var árið
1947. Goldstar tók hins
vegar til starfa árið 1958
til að sækja fram á sviði
rafeindatækni. Á næstu
tveimur áratugum fjölg-
aði framleiðsluvörum
fyrirtækisins stöðugt og
starfsemin varð sífellt
umfangsmeiri. Nú starfa
Lucky og Goldstar í þrem-
Aðalstöðvar Goldstar.
ur heimsálfum og eru
víða í fremstu röð. Meðal
samstarfsaðila þeirra má
nefna Siemens, Hitachi,
Mitsubishi Electric, Fuji
Electric, Honeywell og
AT&T.
Lucky-Goldstar ver nú
um 5% af veltu sinni í
rannsóknir og þróunar-
starf á ýmsum sviðum há-
tækni og hátækniiðnað-
ar. Árið 1988 nam sú fjár-
hæð jafnvirði 38
milljarða íslenskra
króna.
HASARBLÖÐ
Við heyrðum fyrir
skömmu nýyrði úr fjár-
málaheiminum sem við
látum fljóta hér með.
Stundum mun vera talað
um HASARBLÖÐ þegar
um er að ræða viðskipta-
bréf, þ.e. víxla, skulda-
bréf og aðrar skuldavið-
urkenningar frá óáreið-
anlegum eða glæfraleg-
um kaupahéðnum sem
hika ekki við að sam-
þykkja skuldbindingar
sem næsta litlar líkur eru
á að staðið verði við.
Talið er að mikið sé í
gangi af H AS ARBLÖÐUM
frá ýmsum “fjármála-
snillingum" sem fólk hef-
ur hingað til átt erfitt með
að átta sig á.
15