Frjáls verslun - 01.05.1990, Blaðsíða 53
ágætu samstarfi við USAir. Það felur í sér
lægri sérfargjöld í tengiflugi fyrir farþega
okkar og það felur í sér að SAGA CLASS
farþegar okkar fljúga á fyrsta farrými hjá
USAir. Síðast en ekki síst hefur þetta
samstarf það í för með sér að USAir sýna
okkar flug til Evrópu mjög greinilega á
bókunarkerfum sínum."
Hefur svona samvinna verið fyrir hendi
áður í Atlantshafsfluginu?
„Nei, hún hefur aldrei verið fyrir hendi
áður. Sú samvinna, sem við höfum áður
haft við bandarísk flugfélög, hefur verið
mjög laus í reipunum. Við erum núna að
gera svipað samkomulag við American
West flugfélagið, sem er vaxandi flugfélag
héma og flýgur aðallega frá Baltimore til
vesturstrandarinnar. Það félag sér um af-
greiðslu fyrir okkar farþega hér á Balti-
more flugvelli.“
Hve oft í viku ætlið þið að fljúga hingað á
BWI?
„Við byrjum á því að fljúga fjórum sinn-
um í viku í sumar. Næsta vetur ætlum við
að halda uppi flugi hingað þrisvar sinnum í
viku og síðan verður reynslan að leiða í ljós
hvort við aukum tíðnina eða höldum sömu
tíðni á flugi hingað."
Hvemig hefur verið staðið að markaðs-
setningu á flugferðum hingað til Bandaríkj-
anna og þá aðallega til Baltimore?
„Hvað varðar Baltimore þá höfum við
undirbúið þessa flugleið mjög vel. Við
byijuðum á því síðasta sumar að undirbúa
okkur fyrir flug hingað. Við vomm síðan
búnir að ganga frá öllum ráðningum á
starfsfólki í mars síðastliðnum. Við höfum
hér fleiri starfsmenn en við höfum haft
áður í kringum flug til annarra borga hér í
Bandaríkjunum en New York. Við réðum
íslenskan stöðvarstjóra sem talar skand-
inavísku og við réðum Gunnar Eklund sem
svæðisstjóra okkar en hann er fyrrverandi
svæðisstjóri SAS hér í Maryland. Svo höf-
um við sölustjóra hér á svæðinu sem heitir
Jonah Wheeler."
Hvaða viðskiptavini er ætlunin að laða
að með flugi hingað?
„Við ætlum ekki að leggja megináhersl-
una á hópa eins og við höfum stundum
gert, heldur er fyrst og fremst ætlunin að
laða að einstaklinga. Þá er ég bæði að tala
um fólk, sem ferðast í frítíma sínum, og
fólk sem ferðast í starfi og flýgur þá á
dýrustu fargjöldum. Við ætlum að leggja
mun meiri áherslu á þessa farþega, þ.e.
farþega sem eru reiðubúnir að borga
meira fyrir fargjöldin. Þetta þýðir samt
VEIST ÞÚ
Að það er lögboðin skylda að nota einungis
löggiltar vogir við hverskyns verslun og viðskipti?
Þetta er gert til að tryggja að rétt
sé vegið og á engan hallað.
Er vogin þín löggilt?
Gættu að því!
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandic Bureau of Legal Metrology
SlÐUMÚLA 13 - PÓSTHÓLF 8114 - (S-128 REYKJAVÍK SÍMI 91-681122
53