Frjáls verslun - 01.05.1990, Blaðsíða 38
Dieselvélaviðgerðir - Járnsmíði -
Svartolíukerfi - Vökvakerfi -
Upphitunarkerfi - Austurskiljur -
Háþrýstispil
Tökum að okkur viðgerðir og
nýsmíði
Gerum föst verðtilboð í flest
verkefni
cjCcvi e_________________________
Grandaskála v/Grandaveg 101 Reykjavik
sími 91-28922
________________________J
ÖFLUG ÞJÓNUSTA í
ÞÁGU ATVINNULÍFS!
H/F
v/Mýrargötu — 101 Reykjavík — Pósthólf 940
Telefax 354-1-25504 — Sími 24400
um efnum. Fyrstu 4 mánuði þessa árs
hefur salan hjá okkur vaxið um 35% í
magni og um 50% í verðmætum talið. Það
er því stóraukin sala á hærri verðum en
áður.
A hitt vil ég minnast að það eru takmörk
fyrir því hve verðið fer hátt. Ef eftirspum
minnkar á þessum dýrmætu mörkuðum
verðum við að hafa svigrúm til að lækka
okkur aftur, en eins og gjaman vill verða
eiga menn heima stundum erfitt með að
sætta sig við slík markaðslögmál í
reynd!“, sagði Helgi Sigurðsson.
NÝTT LANDNÁM AÐ HEFJAST
„Meginatriðið í þessum viðskiptum er
að hafa næma tilfinningu fyrir mörkuðun-
um og menn verða að vera snöggir að laga
sig að breytingum sem upp koma. Það
gildir um að nýta sér möguleika á nýjum
svæðum en einnig að þróa nýjar söluað-
ferðir og reyna að mæta óskum kaupenda
um nýja framleiðslu. Við höfum verið að
þreifa fyrir okkur um sölu á smápakkning-
um og m.a. sent prufusendingar til 5 við-
skiptaaðila. Viðbrögð lofa góðu um fram-
haldið.
Að mínu mati liggja möguleikar okkar
íslendinga í framtíðinni á þessu sviði. Sá
tími er senn á enda að við seljum þetta
dýrmæta hráefni meira og minna óunnið
úr landi til þess að láta útlendinga marg-
falda verðmæti þess áður en að neytand-
anum er komið. Slíku ástandi verður að
linna á næstu árum og ég er þeirrar skoð-
unar að ef vel tekst til með sölu á fiski í
smápakkningum, sem unnar eru heima á
íslandi, muni útséð um útflutning okkar á
ferskum fiski og frystri blokk og flökum.
Hins vegar megum við ekki gleyma því
að svona útflutningur gerir mun meiri
kröfur til framleiðenda, ekki aðeins um
frágang fisksins í pakkningar heldur einnig
um birgðahald og sérhæfingu í framleiðsl-
unni. Menn verða að eiga sérpakkningar á
lager til að mæta toppunum í eftirspum-
inni og ekki þýðir að láta mörg frystihús
framleiða fyrir sama aðilaim hér úti því
alltaf er einhver munur á framleiðslunni
eftir því hver hefur hana með höndum.
Framtíðin í þessum viðskiptum er afar
björt að mínu mati en jafnframt eru ýmsir
váboðar sem menn verða að varast. Núm-
er eitt, tvö og þijú er að vanda framleiðsl-
una, pakka henni í „dýrar" pakkningar,
gæta að því að framboð fari ekki langt fram
úr eftirspum og loks að sinna markaðs- og
sölumálum eins vel og kostur er á. Ef
menn gera allt þetta þarf íslenskt þjóðarbú
engu að kvíða, svo fremi sem einhverja
fiska sé úr sjó að hafa“, sagði Helgi Sig-
urðsson á skrifstofu Iceland Seafood Ltd. í
Hamborg að lokum.
38